Datt í hug að leita ráða hjá ykkur varðandi smá vandamál sem hefur verið að hrjá Touring hjá mér núna í nokkra daga.
Þetta byrjaði með því að einn daginn þegar ég startaði honum þá fór bíllinn ekki í gang í fyrsta starti. Startaði strax aftur og ekkert gerðist. Hinkraði svo í 20-30 sec og bíllinn rauk í gang.
Svo keyrði ég bara bílinn í nokkra daga og ekkert gerðist. Svo byrjaði þetta aftur og hefur verið að ske núna annað slagið yfir daginn. Kannski af 6-7 ræsingum þá gerist þetta alveg 2-4. Orðið frekar þreytt.
Er eitthvað sem ykkur dettur í hug sem ég á að skoða fyrst ? Þetta getur verið fjandi margt nefnilega
