bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Fri 20. Jun 2025 13:06

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 7 posts ] 
Author Message
 Post subject: Hitavandamál í M20B25
PostPosted: Fri 26. Nov 2010 16:37 
Offline
Búðarkerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 04. Sep 2007 19:33
Posts: 54
Sælir, ég er með vandamál með m20 í e30 325ix.

Bíllinn sleit viftureim um daginn, innri reimina sem keyrir áfram vatnsdæluna, bíllinn hitnaði eitthvað og var búinn að vera leiðinlegur með hitann síðustu mínúturnar áður en hann sleit reimina. Ég var ekki á bílnum sjálfur þannig að ég veit ekki hversu mikið hann hitnaði. Ég skipti um reimina og bíllinn var keyrður í nokkra daga eftirá og svo til í lagi með hann. Svo fór hann að hita sig og át/lak vatni svo ég þurfti að bæta á hann alveg heilum helling, líklega rúmlega 4 lítrum.

Hann nær ekki að hita miðstöðina eins og hann er núna, og hitamælirinn er rokkandi frá normal og uppí tæplega rautt þegar stoppað er, en sígur svo stundum þegar keyrt er en stundum helst hann hátt. Hann hefur ekki farið alveg í botn svo ég viti til ennþá..

Ég hefði haldið að fyrst hann týndi vatninu þá væri heddpakkningin farin, en þar sem miðstöðin hitnar ekki og efri hosan frá vatnskassanum hitnar ekki en neðri hosan hitnar hvort þetta gæti verið vatnsdæla eða jafnvel vatnslás sem er að bögga mig. Ég finn ekkert í olíunni og finnst hann ekki vera að brenna vatni, lyktar ekki þannig. Lítið hægt að marka hvítan reyk í þessum kulda, allir bílar reykja þá. Hann týnir ekki vatni í eftir að bætt var á hann, ekki miklu amk, bíllinn var ekki keyrður mikið eftir það.

Svo, áður en ég rýk til og versla eitthvað sem ég þarf ekki, er eitthvað sem ykkur dettur í hug, einhver einkenni sem ég get leitað eftir?

_________________
Audi S4
Suzuki Vitara 35"


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 26. Nov 2010 20:06 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 11. Mar 2004 18:20
Posts: 2074
Location: Keflavík
Búið að lofttæma??

_________________
Gunni 8663170

BMW M5 Anthrazit Metallic


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 26. Nov 2010 21:11 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
hvaða 325ix er þetta? Ef þetta er touringinn sem ég átti þá er ný vatnsdæla og vatnslás í honum.

Annars prófa lofttæma almennilega, tjekka hvort viftukúplingin sé léleg(hitar hann sig í lausagangi og kólnar á ferðinni?).. ef þetta er allt í góðu þá gæti ég trúað að heddpakkningin sé farin eða versta falli heddið sprungið :?

_________________
Fullt af CF sem rúllar


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 26. Nov 2010 22:41 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Posts: 9115
Location: Breiðholt, Reykjavík
Pff, hver hefur ekki lent í svona fjöri, en ég myndi prófa að lofttæma, LENGI og oft.

_________________
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 27. Nov 2010 00:54 
Offline
Búðarkerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 04. Sep 2007 19:33
Posts: 54
Einarsss wrote:
hvaða 325ix er þetta? Ef þetta er touringinn sem ég átti þá er ný vatnsdæla og vatnslás í honum.

Annars prófa lofttæma almennilega, tjekka hvort viftukúplingin sé léleg(hitar hann sig í lausagangi og kólnar á ferðinni?).. ef þetta er allt í góðu þá gæti ég trúað að heddpakkningin sé farin eða versta falli heddið sprungið :?


Þetta er RO 130, á að vera ný dæla og lás, þess vegna finnst mér það ólíklegt að það sé strax farið og hef meiri áhyggjur af heddmálum. Held ég þurfi bara að byrja á að lofttæma betur. Einhver tips til að ná því 110%?

_________________
Audi S4
Suzuki Vitara 35"


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 27. Nov 2010 10:44 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
H1lmar wrote:
Einarsss wrote:
hvaða 325ix er þetta? Ef þetta er touringinn sem ég átti þá er ný vatnsdæla og vatnslás í honum.

Annars prófa lofttæma almennilega, tjekka hvort viftukúplingin sé léleg(hitar hann sig í lausagangi og kólnar á ferðinni?).. ef þetta er allt í góðu þá gæti ég trúað að heddpakkningin sé farin eða versta falli heddið sprungið :?


Þetta er RO 130, á að vera ný dæla og lás, þess vegna finnst mér það ólíklegt að það sé strax farið og hef meiri áhyggjur af heddmálum. Held ég þurfi bara að byrja á að lofttæma betur. Einhver tips til að ná því 110%?



gamli minn :P

frekar einfalt.. best væri að leggja honum í brekku þannig að vélin halli upp, miðstöðin á heitu og láta bílinn ganga og opna fyrir lofttæmingarboltann á vatnsláshúsnu.. þegar það hættir að bubbla útum hann og rennur stöðugt þá lokaru fyrir.. ATH að fylgjast vel með að það sé nóg á forðabúrinu og að hitamælirinn fari ekki mikið upp fyrir miðju.

Getur prófað að endurtaka þetta ef þetta lagast ekki, annars held ég að eitthvað annað sé farið.

_________________
Fullt af CF sem rúllar


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 27. Nov 2010 11:09 
Offline
Búðarkerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 04. Sep 2007 19:33
Posts: 54
Tók hann og lofttæmdi hann betur í gærkvöldi og bíllinn er farinn að keyra. Hættur þessu veseni og verður að koma bara í ljós hvort hann sé eitthvað að éta vatn.. :)

_________________
Audi S4
Suzuki Vitara 35"


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 7 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 4 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group