Ég er í smá veseni með Motronic 1.3 breytinguna á ETA vélinni hjá mér. Þar sem ég þarf að bolta Motronic skynjara bracketið á blokkina eru tvö göt, bæði M8 eins og boltarnir sem voru í ix vélinni sem þeir koma af. Vandamálið er að götin sem eru á ETA vélinni eru snittuð og allt,,,,en hafa aldrei verið notuð og því full af drullu etc. Boltarnir virðast amk ekki ganga greiðlega inn nema örfáa snúninga, svo kemur mótstaða, annað hvort af drullu eða ryði,,,, Er ekki best að skella snitttappa í götin og reyna hreinsa gengjurnar þannig?
Hvar er ódýrast að fá snitttappa? Mig vantar væntanlega vinduna líka. Einnig, í svona tilfelli, þarf ég að snitta í þremur skrefum eins og venjulega?
_________________ Skúli R E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
|