Binnz wrote:
Hver er verðmiðinn á S50B32, innflutt eða keypt hérna heima?
Kaupir hana ekki hér heima. Bara örfáar vélar til og allar í umferð nema "ein" sem er að ég held ósamsett enn þá.
Líklega best að kaupa hana frá UK. Eru þar á ágætu verði miðað við annars staðar í Evrópu.
Getur líklega fengið S50b30 mótor með kassa á ca. 1500 pund þaðan. Þá er samt ekkert endilega bókað að ástand sé gott. Alltaf smá gamble með það. Gætir samt þurft að bíða/leita að réttum mótor á réttu verði. Ekki alltaf til þegar maður leitar.
Það væri líklega að lenda hér á ca. 600 -700 þús gróflega skotið.
Þá á eftir að koma mótornum í og það má alveg gera ráð fyrir að það geti kostað lágmark 100þús til viðbótar þó þú gerir allt sjálfur. Það þarf að huga að pústi, vélarfestingum, loomi, vatnskassa o.s.frv. Svo er skynsamlegt að gera ráð fyrir því að skipta út slithlutum á vélinni í leiðinni. Svo sem viftukúplingu, kertum síum o.s.frv.