Alpina wrote:
JonHrafn wrote:
2 símtöl
Stykkið milli flangsa kostar 270þúsund. Og hringdi á skoðunarstöð, þeir mæla bara reykþykkni en ekki co2 þannig að maður á að fá skoðun miðað við það.
Helvítans,,
Jakob ,, LINDEMANN er greinilega betri mekki en ég

haha
annars veit ég ekki nákvæmlega hvernig þessir bílar eru útbúnir, en MB er með útbúnað sem er búinn að vera í minni bílunum hjá þeim í einhvern tíma(fólksbílar og sendibílar) sem brennir úr hvarfakútunum með ákveðnu millibili, þ.e. opnar spíssa örlítið á útblásturslagi til að hleypa eldsneyti í pústið og þannig brenna þeir úr hvarfakútunum.......ég veit ekki hvaða áhrif það hefur ef hvarfakútar eru fjarlægðir í bíl með svoleiðis.
þannig að svarið hjá mér var kannski frekar í einfaldari kantinum(vegna þess hversu mikla óbeit ég hef á hvarfakútum og slíku drasli), en best er að athuga reynslu annara af svona aðgerðum. Fyrst þetta er í lagi hjá Dóra þá ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að fjarlægja þetta.