BMW E38 ýskur og læti í hægagangi

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

BMW E38 ýskur og læti í hægagangi

Postby atroxinn » Sun 30. Aug 2009 00:51

Er með leiðindavandamál sem væri frábært að fá einhverjar ráðleggingar með.

Specs um bíl:
BMW E38 730i, 08/1994
M60
Sjálfskiptur

Það kemur svaka hátt og skerandi viðvarandi ýskur frá svæðinu þar sem að vélin og gírkassinn mætast (pabbi kallaði þetta Variator, eftir smá google leit tel ég hann vera að tala um "torque converter") þegar bíllinn er heitur í og í hægagangi, ekkert ýskur þegar hann er kaldur né þegar hann er fyrir ofan 1000 snúningana.

Vorum búnir að ath olíuna og hún gaf alveg til kynna að e-ð væri í gangi þarna, hún var aðeins brún.

Svo að ég spyr, hefur e-r lennt í einhverju svipuðu og/eða veit hvað væri sniðugast fyrir mig að gera, bíllinn gengur annars fínt, nema hann hálf "kippist" til í hægaganginum.

Endilega spurjið ef það er e-ð.
atroxinn
Kassabílstjóri
 
Posts: 103
Joined: Tue 27. Jun 2006 18:54
Location: Reykjavík

Re: BMW E38 ýskur og læti í hægagangi

Postby atroxinn » Thu 10. Sep 2009 21:34

TTT ennþá í þessu veseni :/
atroxinn
Kassabílstjóri
 
Posts: 103
Joined: Tue 27. Jun 2006 18:54
Location: Reykjavík

Re: BMW E38 ýskur og læti í hægagangi

Postby Axel Jóhann » Tue 15. Sep 2009 19:07

250+ í upptekt á skiptingu.
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Re: BMW E38 ýskur og læti í hægagangi

Postby Vilmar » Sat 03. Oct 2009 03:00

Á við sama vandamál að stríða, er reyndar með 750 e38

Væri gott ef eitthver vissi :)
BMW e38 750 97'
BMW e32 740 92'
Vilmar
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 90
Joined: Thu 25. Dec 2008 21:11

Re: BMW E38 ýskur og læti í hægagangi

Postby Andrynn » Sat 03. Oct 2009 13:30

þú segist hafa skoðað olíuna, ertu þá að tala um olíuna á skiptingunni eða vélinni?

ég lenti í þessu á Benz sem ég á, það kom einhver óhljóð úr honum þegar ég setti hann í gang og drap á, og þá vantaði olíu á skiptinguna, og hætti þegar ég bætti á hana

myndi mæla olíuna á skiptingunni
Image BMW 540 E39 1999
Image Husaberg FE450 2004
Andrynn
Kassabílstjóri
 
Posts: 220
Joined: Sun 16. Apr 2006 13:03
Location: Mývatnssveit

Re: BMW E38 ýskur og læti í hægagangi

Postby Vilmar » Sat 03. Oct 2009 19:48

Ég skipti um olíu og síu í skiptingunni (TB) fyrir mánuði, þetta hljóð er enn, þetta er eins og svona ískur í þurri legu eða eitthvað svoleiðis
BMW e38 750 97'
BMW e32 740 92'
Vilmar
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 90
Joined: Thu 25. Dec 2008 21:11

Re: BMW E38 ýskur og læti í hægagangi

Postby BMW_Owner » Mon 05. Oct 2009 21:26

hljómar dýrt! :)
BMW 528Ia
User avatar
BMW_Owner
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1965
Joined: Sun 29. Jun 2003 16:58

Re: BMW E38 ýskur og læti í hægagangi

Postby atroxinn » Thu 08. Oct 2009 18:40

Andrynn wrote:þú segist hafa skoðað olíuna, ertu þá að tala um olíuna á skiptingunni eða vélinni?

ég lenti í þessu á Benz sem ég á, það kom einhver óhljóð úr honum þegar ég setti hann í gang og drap á, og þá vantaði olíu á skiptinguna, og hætti þegar ég bætti á hana

myndi mæla olíuna á skiptingunni


Skoðuðum olíuna á skiptingunni, skrúfuðum úr tappan þar sem maður fyllir á olíuna á skiptinguna og það kom olía út = nóg af olíu
atroxinn
Kassabílstjóri
 
Posts: 103
Joined: Tue 27. Jun 2006 18:54
Location: Reykjavík

Re: BMW E38 ýskur og læti í hægagangi

Postby Vilmar » Fri 09. Oct 2009 01:40

Okey, ég hef verið að lesa á spjallsíðum erlendis..

Þar er þetta þekkt vandamál og þeir segja að þú þurfir að skipta um olíu og síu, og sían þarf að vera OEM og það þarf að standa FILTRAN utaná henni.

TB er greinilega ekki með þessar síur, því að ekki lagaðist þetta hjá mér.

Aftermarket síurnar sem ekki stendur FILTRAN á, er í rauninni að svelta skiptinguna, og þetta fer frekar illa með hana.
BMW e38 750 97'
BMW e32 740 92'
Vilmar
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 90
Joined: Thu 25. Dec 2008 21:11

Re: BMW E38 ýskur og læti í hægagangi

Postby Vilmar » Fri 09. Oct 2009 01:41

og auðvitað þarftu að vera með rétta tegund af olíu.

http://www.bimmerboard.com/forums/posts/29693
BMW e38 750 97'
BMW e32 740 92'
Vilmar
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 90
Joined: Thu 25. Dec 2008 21:11

Re: BMW E38 ýskur og læti í hægagangi

Postby atroxinn » Fri 09. Oct 2009 21:58

Vilmar wrote:og auðvitað þarftu að vera með rétta tegund af olíu.

http://www.bimmerboard.com/forums/posts/29693



takk fyrir þetta info Vilmar
ef þú ferð í að redda þér sýu og örðu, láttu mig endilega vita hvernig fer ;)
Er ekki í miklu stressi með þetta, bíllinn stendur bara og bíður eftir að ég gefi mér tíma í að sinna honum
atroxinn
Kassabílstjóri
 
Posts: 103
Joined: Tue 27. Jun 2006 18:54
Location: Reykjavík

Re: BMW E38 ýskur og læti í hægagangi

Postby maxipop » Sat 02. Jan 2010 18:15

Virkaði þetta?
maxipop
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 43
Joined: Wed 10. Jan 2007 10:27


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 27 guests