bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 22. Jun 2025 00:14

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 1 post ] 
Author Message
PostPosted: Tue 15. Dec 2009 17:49 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Wed 16. Feb 2005 23:49
Posts: 446
Edit sett neðst í póst

Ég var í því að skipa um ónýtar perur í mælaborðinu í 535iA E34 bílnum hjá mér um daginn.
Mig vantar almennilegar leiðbeiningar um hvernig dashboard testið er framkvæmt.
Samanber þetta video.

Finn voða lítið af góðum leiðbeningum fyrir E34. Þær sem ég finn hafa ekki virkað fyrir bílinn hjá mér, ég hef gert þetta test á bílnum hjá mér en það er dálítið mikið langt síðan svo ég man ekki hvernig ég gerði það.

Vegna þess að það er engin bilun í bílnum hjá mér þá kveiknar ekkert á lcd skjánum þegar ég svissa á bílinn. Og vegna þess að BC takkinn á stefnuljósastönginni virkar ekki hjá mér þá hef ég ekki getað fengið neinar upplýsingar úr OBC tölvunni inn á LCD skjáinn hjá mér.
Ég endaði reyndar á því að taka aðra afturljósaperuna úr bara til að fá error skilaboð, þannig náði ég að ganga úr skugga um að lcd skjárinn væri ekki dauður eins og ég var farinn að halda á tímabili.

Venjulega þegar maður svissar á milli tungumála fyrir lcd skjáinn þá kemur upp á lcd skjáinn hvaða tungumál hefur verið valið, núna gerist það ekki og birtist bara í obc tölvunni hjá mér, veit einhver afhverju þetta er? (Þetta var t.d. ein ástæðan fyrir því að ég hélt að lcd skjárinn væri dauður)

Þegar ég tók mælaborðið úr þá sá ég að nokkur perustæðin voru tóm, var það flest eitthvað sem ekki er í bílnum hjá mér eins og fyrir loftpúða og sætisbelti (það eru ekki sætisbeltaskynjarar í bílnum hjá mér)
Eitt af því sem ekki var pera í fyrir var Check Engine svo ég setti peru í það. Þegar maður svissar á bílinn svo hefði maður haldið að það ljós ætti að kveikna, það gerir það nefnilega ekki hjá mér! Eða er bara möguleiki á að þetta ljós eigi bara ekkert að vera í bílnum hjá mér?
Því ég setti líka til að prófa peru í ljósið fyrir sætisbeltin og það kveiknar þegar ég svissa á bílinn en slökknar svo strax aftur.

Edit:
Jæja, ég fann loksins út hvernig á að gera testið.
Maður hefur ekkert svissað á bílinn, ýtir á og heldur niðri check control takkanum (hægri takkinn), og svissar svo á on eða semsagt annað þrep og þá framkvæmist testið.
En þá kemur upp spurning hjá mér, þegar ég geri þetta við bílinn hjá mér þá hoppar hraðamælirinn uppí 125 km og snúningsmælirinn í 3500 rpm á meðan hita, eyðslu og bensínmælir gera eðlilegt test.
Veit einhver hvort þetta er eðlilegt eða hvort gæti verið að eitthvað sé að?
edit 2: Fann video sem sýnir það sama og kemur hjá mér, léleg gæði

_________________
Sverrir Már

Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93



Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 1 post ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 15 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group