Ég er í veseni með stýrið hjá mér í E36.
Ég er með E36 318i '91.
Bílinn fékk ég með E36 sport airbag stýri en innan í stýrinu eru bara dagblöð og flautan virkar ekki
Það var gerð athugasemd á flautuna í skoðun svo mig vantar að laga þetta.
Fékk hjá Sigga hérna í Kef,,,oem stýri úr E32/E34 sem er með airbag.
Á því stýri er tengi og í því eru tveir vírar.
Annar er blár og hinn er brúnn.
Undir stýrisrackinu í bílnum mínum er hinsvegar bara eitt tengi og eingöngu með einum vír.
Sá vír er rauður/brúnn.
Er það þá rétt getið hjá mér að ég sé með bíl sem hafi ekki verið með airbag og það sé ástæðan
fyrir því að það er einum færri vír hjá mér?
Get ég tengt flautuna í airbag stýrinu við þennan vír hjá mér eða verð ég að útvega mér non-airbag stýri?
Allar ábendingar vel þegnar

