Miðstöðin í bílnum mínum hefur verið biluð síðan ég keypti hann í sumar en það fór fyrst að fara í taugarnar á mér þegar það byrjaði að frysta, það lýsir sér þannig að hún hleypir bara lofti í gegn og hitar sig alveg en hún blæs ekki.
Ég hélt það væri mótorinn en ég keypti nýjan og setti í og ekkert gerðist, prufaði líka að beintengja gamla við rafmagn og hann flaug í gang en þrátt fyrir það að hann sé í lagi fer hann ekki í gang þegar hann er tengdur við bílinn. Líka búinn að skipta um mótstöðuna og takkaborðið virkar, amk færir það lokurnar undir mælaborðinu.
Þannig núna er ég með E38 með ekkert mælaborð og bilaða miðstöð og spáð stormi næstu þrjá daga svo allar upplýsingar væru vel þegnar, kanski gott að taka fram að þetta er 96' 740 með tvískiptri aircondition miðstöð.
mbk. Markús


