Mín reynsla er sú að dekkin sjálf, tegundin semsagt, skiptir ekki minna máli en prófóllinn. Var á E46 á 16" 225/50 sem var ljúfur sem lamb og rásaði
ekkert á Continental dekkjunum sem hann var á enda engin ástæða til miðað við stærð. Keypti svo Marshall (framleidd af Kumho!) sumardekk undir hann og hann fór að rása alveg eins og vitleysingur og var hreint út sagt vonlaus þangað til Continental dekkin fóru undir hann aftur.
Hérna eru fleiri sambærilegar sögur.
Ég myndi því ráðleggja þér að heyra í fólki á E60/61 sem er á sömu felgustærð og þú og á bíl sem rásar ekki og kaupa svo bara nákvæmlega sama gúmmí undir.
