Daginn
Ég er með eitt stykki BMW 525ix '94 árgerð og vantar báða framdemparana í hann. Ég var að spá í að reyna redda mér þessu notuðu að utan. Ég er með mann í Þýskalandi sem getur keypt þetta fyrir mig, hann býr rétt hjá Frankfurt.
Vitið þið nokkuð hvernig best væri að bera sig að í því að leita uppi svona varahluti? Veit einhver um partasölur í Þýskalandi sem gætu verið með þetta? Dempararnir meiga alveg vera notaðir mín vegna.
Mér er sagt annars að framdempararnir í þessum BMW séu alveg spes, og finnist ekki í neinum öðrum BMW, svo það gæti verið smá vesen að redda þessu.
Ég fletti bílnum upp á bmwfans.info og sýnist að þetta sé dempararnir:
bmwfans.infoMyndi samt ekki hengja mig uppá það, þekki þennann bransa lítið. Uppsett verð þar er 231 evra, sem er ekki svo dýrt. Ég býst við að þetta sé verðið útúr umboði.
Allar ábendingar velkomnar

kv
Frímann