Bílinn hjá mér hefur verið með smá ýskur uppá síðkastið sem var svo síðustu daga alveg stanslaust og nett pirrandi.
Til að laga þetta tók ég stýrið af.
spennti gorminn sem tekur við áreksturs höggum á stýrið og náði svo að sprauta smá WD40 bakvið skinnu sem blokkar aðgang ofan í stýrisganginn. Skinnan er fyrir neðan gorminn ekki ofan. og ég spennti gorminn bara með skrúfjárni þannig að það væri hægt að sprauta smá olíu þarna ofan í.
Ýskrið var að koma frá drullu sem hefur komist þarna á milli og þegar maður ýti fast á stýrið
og snéri þá fór hljóðið, þ.e þegar þrýstingur var tekin af þessari skinnu.
Eftir þetta er stýrið alveg hljóðlaust og fínt .
_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
