Nú er ég enginn turbosérfræðingur en langar að leggja nokkur orð í belg.

Þessar greinar geta eflaust flætt mun meira en þær gera stock, flatarmálið á portinu á þeim ætti að vera meira en á útbl.portinu á heddinu og svo eru þær líka mjög stuttar. En það er annað spennandi við þessar greinar, það er hægt að snúa þeim við 180° og runna top-mount, og fá þannig þægilegri aðgang að kuðungunum og meiri loftkælingu á þá sjálfa(jafnvel hægt að setja ONNO-ristar á húddið) til að auka kælinguna enn frekar því það verður töluverð hitamyndum af þessu öllu saman í húddinu, og var víst vandamál fyrir.

Ef þú ætlar að stækka túrbínurnar og blása meira væri mjög sterkur leikur að breyta þessu downpipe-i í leiðinni, því að frá þessum myndum að dæma væri hægt að auka þrýstifallið yfir útbl.túrbínuhjólið þónokkuð með því að fá sverara downpipe strax eftir túrbínuna, og fá þannig betra flæði á afgasinu og betri nýtni á túrbínuna vegna meiri þrýstifalls yfir hana.

Til að runna top-mount þyrfti samt að taka vel til þarna, og varla hægt að fjarlægja loftsíukassann og AFM ef menn ætla að notast við original motronic1.3
Vill taka fram að þetta eru bara vinsamlegar tillögur og ég hef enga tjún menntun né reynslu.(flamesuit on)