Ég ætlaði að opna skottið hjá mér áðan en þá er eins og takkinn hafi ekki alveg smollið út... Og ég næ þessvegna ekki að opna skottið hjá mér...
Hvað er til ráða?
Og já annað, fyrst maður er í þessum lásapælingum... Hurðarhúnninn farþegamegin að framan er farin að verða eitthvað leiðinleg, það þarf stundum að toga fast í hurðarhúninn, bæði að utan og innan... Stundum virkar líka betur að toga meira hægra eða vinstra megin í húninn að utan... S.s. eins og húnninn grípi ekki jafnt í.... Mér finnst eins og það sé einhver slappur vír eða gormur sem er að orsaka þetta en veit þó ekkert hvernig mekanisminn innan í hurðinni er...



