Sælir,
Ég fór að taka eftir smá bank hljóði (kloink hljóði) vinstra megin í bílnum þegar er keyrt yfir ójöfnur. Gerist aðallega á hraðahindrunum sem eru með bratta/hvassa kanta en þá kemur smá högg hljóð.
Reyndar kom þetta hljóð eiginlega fyrst eftir að ein helvítis hraðahindrunin var með stæla og var ekki að sýna sig í myrkri og ég fór svolítið harkalega á hana... samt ekkert hræðilegt, en fannst þetta hljóð hafa komið eftir það...
Ég þóttist alveg kannast við málið og fór því og skipti um spyrnufóðringu sem ég hélt einmitt að væri kominn á tíma.
Við þetta fór hinsvegar hljóðið ekki.
Það eru nýlegir balancestangarendar báðum megin og núna nýjar spyrnufóðringar.
Hvað gæti þetta verið? Demparapúðar? Balancestangargúmmí?
Eitthvað meira vesen?
Kv. Dabbi
_________________
MMC L200 38" 2001
BMW 328 e46 *Loadaður* 18" ljúft....SOLD
Suzuki Vitara ´97 Vetrarbíter...SOLD
