Sælir kraftsmenn,
eftir stutta og árángurslausa leit þá ætla ég að pósta vandræðum mínum hér
ég er með e36 318 '95 árgerð og hann tók upp á því að hita sig töluvert....ég reif upp húddið að tjékka hvað væri að og sá þá að slangan úr kassanum og í vélina hafði dúndrast af ... trúlega vegna þrýstings ?...
ég henti slöngunni aftur á og herti vel og keyrði heim og hellti vatni á hann... og daginn eftir hitnaði hann aftur...svo ég lét menn líta á hann og komust þeir að því að það þyrfti bara að lofttæma kvikindið.... og eftir það hefur hann bara verið gullfallegur og látið vel........þaaangað til í kvöld þegar ég skildi hann eftir í gangi í svona 10mín....
keyrði af stað og eftir svona 50-100 metra kviknaði helvítis ljósið ... þannig að ég drap á bílnum, leyfði honum að kæla sig og dúndraði svo heim og hóf skrifin....
svo er miðstöðin eitthvað í fokki útaf þessu... eftir að þeir lofttæmdu hann þá hitnar miðstöðin mjög seint og illa.... er þetta í einhverju samfloti eða hvur fjandinn er að ?
með von um góð svör
