Var að dóla mér á tæpum 40 km hraða áðan í mínum e36 þegar ég heyrði bank og einhver óhljóð sem komu frá vinstra afturdekkinu.
Þetta lýsir sér þannig að þetta kemur þó ég sé ekki að fara í ójöfnur og var farið að heyrast nokkuð oft undir það síðasta. Og ég þvoði líka bílinn í dag og eftir að þetta bank kom þá kom þetta þykka lag af að mér sýnist vera einhversskonar ryð/ryk á felgurnar.
Pabbi talaði um að þetta væri eitthvað rugl með bremsubúnaðinn en ég fer með hann á verkstæði á morgun að láta tjékka á þessu.
Veit einhver hér hvað þetta gæti verið?