Jæja, til að gera stutta sögu lengri, þá hefur misgáfaður eða mislaghentur eða mis-eitthvað fyrrum eigandi eyðilagt gengjurnar á sílinder nr. 6 á bílnum og kertið ákvað því að leggja í ferðalag þegar bíllinn leið fram hjá Sandskeiði. Ég hef ekkert heyrt frá blessuðu kertinu en óska því alls hins besta í framtíðinni. Ekki hefur sést tangur né tetur af kerti nr. 6 frá því þá! Ég tók mig til og verslaði í Okur-1 snitttein ásamt viðgerðar-gengjum fyrir 14mm kerti. Kostaði um 6000 krónur, enginn afsláttur af snittaranum
Hann tengdi ryksugu, sem hann var búinn að fixa þannig að hún blés í staðinn fyrir að sjúga, á pústið. Svo snéri hann vélinni þangað til að loftið blés út um kertagatið. Bara sniðugt, þá fer ekki allt svarfið inn í vélina heldur í ennið á þeim sem snittar gengjurnar. Skúra Bjarki kom mér til bjargar og lánaði mér gömlu (ég er að tala um GÖMLU) Nilfisk geimfars-ryksuguna þar sem hægt er að plögga barkanum á útblásturinn í stað innsogsins. Mamma var búinn að henda sinni, andvarp, svo Bjarki reddaði mér alveg þarna.
Mér leist ekkert á þetta til að byrja með, fannst ekki að teinninn væri að grípa neitt og ég væri að svæsa ál í burtu í gríð og erg og myndi ekki ná neinu haldi. En..... upp stytti að lokum eftir ýmsar tilfæringar fannst mér að eitthvað væri að gerast. Þá þegar maður er kominn í gegn (ég var alltaf að skoða þetta með vasaljósi og spegli, maður getur ekki séð þetta öðruvísi) þá er það næsta skref.
Gengjurnar sem maður skrúfar í eru úr stáli. Maður þræðir þær upp á kertið (setur olíu, ég notaði copaslip á gengjurnar innan í) og setur svo gengjulím á utanverðar gengjurnar. Þetta er svona eins og að klæða kertið í vettlinga
Nú en svo var bara að taka ryksuguna af pústinu og trekkja í gang. Gekk eins og í sögu og bíllinn seldur aftur
Góðar stundir


