by Frikki » Sun 19. Aug 2007 23:17
Ég er með 2005 árgerð BMW E90, hann var ömurlegur í akstri.
Eftir sumarið voru dekkin ónýt, misslitin og allt í rugli! Góð Bridgestone dekk undir honum(run-flat). Man ekki alveg dekkjastærðina en þetta var 17" low-profile.
Mér hafði alltaf verið sagt að setja svona 32 psi í dekkin sem og ég gerði reglulega.
Þegar ég var svo endanlega að gefast uppá þessu, fór ég og náði í vetrardekkin, fór á hjólbarðaverkstæði og lét skipta.
Gæinn þar sagði mér að ástæðan fyrir þessu rugli (kippti í stýrið, slitin á dekkjunum og allt þetta) væri vegna of lítils loftþrýstings. Hann sagði að lágmarkið væri 36 psi í svona low-profile dekkjum.
Eftir að 17" low-profile vetrardekkin voru sett undir (og hinum HENT!!) þá hefur bíllinn verið 100% draumur í akstri.
Vona að þetta hjálpi.