Inspection II og service pælingar

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Inspection II og service pælingar

Postby thisman » Mon 10. Sep 2007 22:41

Hvenær þarf maður að fara með græjuna í Inspection II? Er á 320d 2005 módel sem er búinn að fara í Inspection I úti en því miður klúðruðu þeir þjónustubókinni þannig að síðasta þjónustuskoðun er til að mynda ekki skráð í hana og ég veit hreinlega ekki hvað var gert þá. Er einhver leið fyrir mig til að láta athuga hvort að Inspection II sé lokið eða lætur græjan mig vita þegar komið er að því?

Þessu tengt þá segir bíllinn núna að það séu 13000 km í næsta service. Er það bara næsta smur eða eitthvað meira service? Sá sem flutti bílinn inn setti hann í smur úti í byrjun apríl og þá var tölvan núllstillt. Er í lagi fyrir mig að treysta því bara sem bíllinn segir eða væri gáfulegra að láta bara smyrja hann núna þegar hann fer inn til TB út af spíssamálum í vikunni? Finnst það bara hálf tilgangslaust ef það er hvort eð er kominn tími á Inspection II og ég þarf að fara að panta tíma hjá B&L á næstu vikum.

Þetta er enginn smá business að eiga BMW, maður þarf sífellt að vera að pæla í einhverju :wink:
thisman
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 367
Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01

Postby thisman » Tue 11. Sep 2007 10:21

Ég horfði betur á mælaborðið í morgun þegar ég startaði bílnum og það stendur ekki "Service" heldur "Inspection" og 13000 km. Eru þá 13000 km þangað til ég þarf að fara með hann í Inspection II haldið þið? Lætur hann ekki vita hvenær ég þarf að fara með hann í venjulegt smur heldur bara þessi alvöru inspection?
thisman
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 367
Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01

Postby X-ray » Tue 11. Sep 2007 10:24

Fáðu samband við verkstæðismótöku bogl BMW þeir geta svarað þér nákæmara en einhver skot út í loftið hér...

575-1200
TXIXXPX XXXTXXX X7X

German Disel power :)

E32 735i '91 SELDUR
Black on Black

Image
X-ray
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 704
Joined: Tue 03. May 2005 14:55
Location: Keflavik


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 27 guests