Mér er farið að finnast sjálfsskiptingin í bílnum mínum sé að haga sér smá öðruvísi núna.
Hún er alveg eins og hún á að vera þangað til að hún á að fara í 5 gír.
Hún er alltaf mikið lengur í 4 gír. Hann var venjulega að skipta í 5gír í 80-90km/klst og var þá að malla í sirka 1600RPM. Núna þegar ég er alveg í 110 er hann enn í 4.gír og þá á sirka 2400RPM.
Svo ef ég botna hann og þegar ég er kominn í sirka 80km/klst í öðrum gír, hætti svo að auka hraðan og held jöfnum hraða (80) þá skiptir hann sér ekki upp sjálfur, þá þarf ég að skipta í 4. og aftur í D, en þá skiptir hann sér upp alveg í 5. gír, sú aðferð virkar líka þegar ég er á 100 í 4.gír, þá er nóg að setja stöngina á 4 og aftur í D til að fara í 5. gír
Hefur einhver hugmynd hversvegna skiptingin er farin að haga sér svona?

