Gangtruflanir í M60

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Gangtruflanir í M60

Postby Schulii » Mon 26. Jun 2006 23:50

Sælir Kraftsfélagar!

Það hafa verið gangtruflanir í bílnum mínum sem er 730i V8. Þær lýsa sér þannig að bíllinn hikstar og missir úr slög þegar hann er að toga á lágum snúning. Þetta getur verið t.d. þegar ég gef í eftir að hafa farið yfir hraðahindrun í 3.gír og þarf að láta bílinn toga sig upp. Þetta er mjög leiðinlegt og búið að valda smá höfuðverk. Mig fór fljótlega að gruna að þetta væri lausagangsrofinn þar sem hann átti það til að drepa á sér þegar ég var að taka af stað úr stæði og beygja á sama tíma. Það kom líka í ljós þegar ég lét lesa á hann í TB að lausagangsrofinn væri bilaður. Skipt var um hann og allt varð bara eins og nýtt og voða gaman. Síðan eftir nokkra daga byrjaði þetta aftur. Þá fór ég með hann á annað verkstæði og þar var farið yfir mjög margt. Þá kom í ljós að hann var að taka smá falskt loft hjá loftflæðiskynjaranum sem var lagað og svo voru sett hreinsiefni sem áttu að hreinsa alla spíssa og allt slíkt. Þeir sögðu mér líka að tölva hafi lesið að 3 spíssar væru ekki að starfa eðlilega. Við ákváðum að athuga fyrst hvort þessi hreinsun og að laga falska loftið hefði kannski dugað og skoða þá hitt seinna ef svo væri ekki. Og viti menn, bíllinn varð bara rosa fínn og allt hikst horfið og mjög góður gangur. En, svo byrjar þetta aftur. Núna er hann töluvert skárri en alltaf þetta hikst og missa úr slög annað slagið á þessum lága snúning. Ég vill taka það fram að það eru ný kerti í bílnum.

Þannig að mig langar að spyrja að tvennu:

Dettur einhverjum eitthvað í hug sem gæti verið að annað en spíssarnir?
Veit einhver hvort það sé stór (dýr) aðgerð að skipta um 3 spíssa?
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby IvanAnders » Tue 27. Jun 2006 00:12

skoðaðu háspennukefli(in)
Alpina wrote:er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,
User avatar
IvanAnders
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3733
Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Location: 108

Postby e30Fan » Tue 27. Jun 2006 17:42

kertaþræðir er mitt gisk.. minnir mig á bilun sem ég varð fyrir um leið og vélin varð fyrir álagi þá byrjaði allt að koka og hiksta..
e30Fan
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 348
Joined: Sat 11. Sep 2004 15:33


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 9 guests