Þjófavarnarkerfi í E39

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Þjófavarnarkerfi í E39

Postby basten » Sun 23. Apr 2006 20:15

Sælir.

Þannig er mál með vexti hjá mér að ég lét skipta um rafhlöðu í fjarstýringunni að bílnum í B&L. Eftir að það var gert hefur þjófavarnarkerfið farið í gang oft eftir að ég er nýbúinn að læsa bílnum.

Ef ég læsi með fjarstýringunni kemur þetta undantekningalaust og í svona helming tilfella ef ég læsi með lyklinum sjálfum.

Þegar ég læsi og opna með fjarstýringunni kemur "Fünkschlussel Batt." sem mér skilst að þýði að ég þurfi að skipta um rafhlöðu þar sem hún á að verða tóm. Ég skil það ekki þar sem ég var að láta skipta um rafhlöðu.

Þessi skilaboð komu á skjáinn hjá mér fyrir nokkru síðan og varð til þess að ég lét skipta um rafhlöðu. Þá fór einmitt kerfið í gang í tíma og ótíma.

Þarf að láta endurforrita fjarstýringuna? Veit ekki alveg hvað málið er með þetta.
Siggi
basten
Getawaybílstjóri
 
Posts: 860
Joined: Sat 16. Nov 2002 04:45
Location: Reykjavík

Postby Jss » Sun 30. Apr 2006 19:20

Ef að fjarstýringin virkar að einhverju leyti þá ætti ekki að þurfa að endurforrita hana, hins vegar gæti verið að eitthvað í lyklinum sjálfum sé að klikka. Nema rafhlaðan sé einfaldlega gölluð (kemur fyrir). Myndi byrja á því að tala við þá á verkstæðinu uppí B&L.
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 1 guest