HJÁLP! Burrinn er bilaður d:(

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

HJÁLP! Burrinn er bilaður d:(

Postby Svessi » Tue 14. Mar 2006 22:37

Jæja, BMW bilaður hjá mér enn einu sinni.
Hvað er það með mig og BMW ...æ, jæja.

535iA ´89 bíllinn minn.
Já, hann er sjálfskiptur.

Hvað getur mögulega verið að?

Ég var að keyra frá ljósunum við smáralindina og upp á Reykjanesbrautina í átt að Hfj.
Allavega, ég er alveg að fara keyra yfir brúnna og er á í kringum 60 km hraða og er að auka ferðina uppí svona 80 km hraða og er ekkert að gefa í, bara mjög eðlilega daily driver inngjöf. Og í stað þess að skipta sér í kringum 3000 rpm þá fer hann alveg uppí 4000 rpm. Og svo finn ég strax hvað bíllinn verður allt í einu miklu þyngri. Ég þarf að gefa miklu meira inn heldur en eðlilegt er. En ég gat samt aukið ferðina aðeins og hann skipti sér eðlilega að mér fannst. Og ég fer strax útaf þarna hjá bílaapótekinu að hringtorginu, keyri Hæðarsmárann fyrir ofan malarsvæðið og ætlaði svo upp Smárahvammsveginn upp að hringtorginu á Arnarnesveginum. Og þá stoppaði hann. Vélin hélt áfram að vera í gangi en bíllinn var orðinn svo þungur að ég komst ekki upp brekkuna. En ég gat sett í Bakkgír og bakkað aftur til baka og fékk svo pallbíl til að skutla mér heim.

Semsagt alla leiðina var hann hægt og rólega að verða þyngri, en skipti sér að mér fannst eðlilega. Ég stoppaði allavega þrisvar þarna á leiðinni því ég var að spá hvað ég ætti að gera.

Það kom enginn smellur, ekkert skrölt, engin skilaboð í mælaboðið. Olían er eðlileg á kassanum. En ég er alveg skíthræddur um að kassinn hafi farið. Please segið mér að það sé bara eitthvað öryggi sem ég á að tjékka á eða eitthvað álíka fáránlegt.
Ég bara nenni ekki að standa í þessu. Er ekki einhver ECU fyrir sjálfskiptingarnar á þessum bílum? Er eitthvað hægt að tjékka á þessu sjálfur eða þarf ég að fara með hann á verkstæði og borga álíka mikið og bíllinn er virði að láta gera við þetta?
Sverrir Már

Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93

User avatar
Svessi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 446
Joined: Wed 16. Feb 2005 23:49

Postby Geirinn » Tue 14. Mar 2006 22:41

Eftir öðrum svona þráðum sem fjalla um það sama, þ.e. að bíllinn verður óvenjuþungur, þ.e. bregst illa við inngjöf þá gæti samkvæmt öðrum þráðum verið að skynjari sé farinn.

Ég myndi (ef aðrir taka undir þetta) fara með hann í tölvu og láta lesa af honum. Vonandi er ekki meira en einn skynjari eða svo farinn.
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby saemi » Tue 14. Mar 2006 23:33

Ef vélin gengur eðlilega, hægt að setja hana upp á snúning í N eða P þá finnst mér þetta hljóma sem biluð skipting.

Finnst mjög ólíklegt að þetta sé bara e-r skynjari eða svo.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby anger » Wed 15. Mar 2006 01:07

750 gamli hljómar ekki sem slæm hugmynd nuna ha :D
BMW E38 750
Gömlubílarnir
BMW e39 523
BMW e36 325
BMW 740 e38
BMW z3 '99 Coupé
BMW M5 e34
BMW 730 e32 2x
BMW 750 e32 2x
User avatar
anger
Getawaybílstjóri
 
Posts: 791
Joined: Fri 22. Oct 2004 13:04


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 9 guests