Stefan325i wrote:
samt þannig séð sniðugt hjá gaurnum, það var verið að taka bílinn af honum þanni að hann náði að fá eithvað útur honum, ég held að hann hafi ekki borgað nema nokkrar afborganir af bínum, ef þá það.
svo faldi hann bara bílinn.
Já það er gaman að keira þetta tæki, mér fanst ég vera COOL

Það sem gaurinn gerði var ólöglegt, bíllinn var veðsettur í botn og hann hann var heppinn að vera ekki ákærður fyrir að drýgja veðið með því að hreinsa aukahluti af bílnum. Þeir sem áttu veð í bílnum þ.e.a.s Tryggingamiðstöðin voru á uppboðinu og ég er ekki viss um að þeir hafi verið sáttir vegna þess að það var einhver gaur á uppboðinu að bjóða mönnum hlutina sem vantaði á bílinn. En bíllinn er kominn aftur í hendur bónbræðra og ég vona að þeir komi honum aftur í gott stand. 2,3 milljónir er eflaust ágætt verð fyrir þennan bíl en menn mega samt ekki gleyma því að þessi bíll kom heim í döðlum og það tók 3 ár að tjasla honum saman. Og Stefán þetta er ekki 92 módel heldur 95

_________________
BMW X3 M tech (F25) árg. 2015
VW Golf MK 3,5 cabriolet árg. 2001
Porsche 911 SC árg. 1980
Porsche 924 árg. 1982
Porsche 928 S4 árg. 1991
Nikolai Smolenski wrote:
Buy a Ferrari and you become a member of a club. Buy a TVR and you remain an individual