gardara wrote:Ekkert að því að birta þetta, verður vonandi víti til varnaðar.
Óhöpp gerast hvað sem gert er. Það er hægt að setja reglur um allt og ekkert, banna allt og á endanum verður lífið eins og þurrt franskbrauð, snautt af öllu því sem kryddar og gefur ánægju.
Viltu þá meina að það eigi að birta myndir af bílslysum í þeim tilgangi að það sé öðrum víti til varnaðar?
Það er hægt að banna einkabáta, þar hafa gerst hörmuleg slys. Það ætti að banna akstursíþróttir, fallhlífarstökk, köfun, einkaflug, jeppamennsku, fjallaklifur, .. hvar á að enda? Þetta voru einfaldlega skelfileg mistök. Sá sem gerði þetta fór vissulega út fyrir ramma þann sem honum var sniðinn samkvæmt reglum. Hann lét lífið í kjölfarið og þar með dó allt tal um öll ábyrgð sömuleiðis fyrir mér. Það vita allir sem þekkja eitthvað til þessa hvernig í pottinn liggur og ég sé ekki nokkurn einasta göfugan tilgang í því að rifja þetta upp.
Ég er persónluega ekkert á móti því að þetta myndband sé sýnt. En birting þess mun ekki gera heiminn að betri stað í mínum huga. Það er bara sorglegt að horfa á það og það mun ekki bæta neitt.