Æi ég held við hljótum að hafa einhverja mismunandi skilgreiningu á orðinu.
Fyrir mér er dolla einhver svona flimsy bíll sem að virkar tómur í sér og svignar. Ef ég ætlaði að fara kalla bíla sem hafa mikið ground feel og hafa ekki innréttingu eins og S-Class dollur, þá væri ég að gera ansi lítið úr orðinu.
Svo að hann sé þakinn hörðu plasti. Tja, það er örugglega meira leður í innréttingunni á honum en í Z4? En samt myndi ég ekki kalla Z4 dollu.
Ekki það að mér finnist ekki hönnunin á BMW almennt miklu flottari, en það verður auðvitað að hafa í huga að smekkurinn þarna í Japan er bara ALLT öðruvísi en á vesturlöndum. Sama hvort það er í prenti, sjónvarpi, umbúðum á mat eða bifreiðum. JDM og það allt.
Quote:
En það hefur lítið með brautartíma að gera, því hann svínvinnur þar og mun seint vera tekið frá honum. Við hverju á maður svosem að búast frá svona bíl?
Já það er spurning. Við erum enn að bíða eftir M6 sem kemst nálægt því að vera 3 sek í hundraðið, hvað þá undir 3 sek.
(GT-R er 30kg þyngri en E63 M6, en F12 fitnaði svo um 200kg.)