Page 1 of 1
Banaslys Georg Plasa - varúð

Posted:
Mon 03. Sep 2012 11:49
by fart
Hafði ekki séð þetta áður, svakalegt högg. Lítur út fyrir að hann hafi ekkert bremsað.

Re: Banaslys Georg Plasa - varúð

Posted:
Mon 03. Sep 2012 12:53
by Maggi B
úfffffffffffff, ekki gott að horfa á þetta
Re: Banaslys Georg Plasa - varúð

Posted:
Mon 03. Sep 2012 14:49
by saemi
Þetta er hroðalegt. Það er eins og hann hafi bara frosið áður en hann skall á vegginn.
Re: Banaslys Georg Plasa - varúð

Posted:
Mon 03. Sep 2012 15:02
by fart
Hann fer af gjöfinni, nema að mótorinn deyji og þ.a.l. virki bremsurnar ekki sem skildi? Nema stýrið hafi losnað? Hef séð video þar sem að svona quick release stýri poppa af. Erfitt að segja.
En maður fær alveg í magann að sjá þetta...

Re: Banaslys Georg Plasa - varúð

Posted:
Mon 03. Sep 2012 16:03
by gstuning
Virkar eins og hann beygji ekki einu sinni.
Re: Banaslys Georg Plasa - varúð

Posted:
Tue 04. Sep 2012 12:51
by íbbi_
virkar á mann eins og undirstýring. gæti verið vegna þess að hann hafi hikað og slakað aðeins á gjöfinni
Re: Banaslys Georg Plasa - varúð

Posted:
Tue 04. Sep 2012 14:23
by fart
íbbi_ wrote:virkar á mann eins og undirstýring. gæti verið vegna þess að hann hafi hikað og slakað aðeins á gjöfinni
Undirstýring kemur yfirleitt ekki við það að fara af gjöfinni því að þá flyst þunginn á framdekkin, hann hefði síðan í raun yfirstýrt frekar ef hann hefði farið snögglega af gjöfinni (lift oversteer)
Re: Banaslys Georg Plasa - varúð

Posted:
Wed 12. Sep 2012 17:21
by JonFreyr
Yfirlið, gæti hafa fengið fyrir hjartað. Þegar þú ert á 200km hraða þá þarf svo lítið að gerast svo að hlutirnir fari hræðilega illa. Hins vegar keyrir hann bara inn í klettinn, hann bremsar ekki og beygir ekki. Mjög ljótt slys og finn til með fjölskyldu og vinum hans.
Það hefur enginn annar fengið að blasta jafnoft í græjunum hjá mér enda hljóðið í þessum græjum hans legendary.