Page 1 of 1

Muna eftir að nota beltin !!!!

PostPosted: Thu 29. Jan 2004 02:59
by Haffi

PostPosted: Thu 29. Jan 2004 03:06
by Dr. E31
Hólí fokk maður!!! Þetta er rosalegt!

PostPosted: Thu 29. Jan 2004 10:30
by iar
Þetta er magnað!! Góð áminning og ætti helst að sýna á besta tíma í sjónvarpi!

Fengi kannski fólkið til að hugsa sig um, sem situr í belti í bílnum en hefur krakkana sína lausa. Hef aldrei skilið hugsanaganginn í kringum það... meiri sjálfselsku er eiginlega ekki hægt að hugsa sér. :evil:

PostPosted: Thu 29. Jan 2004 10:33
by Svezel
Þið fyrirgefið en ég get ekki annað en hlegið að þessum bjána. Hann er eins og kartafla í þvottavél :lol:

PostPosted: Thu 29. Jan 2004 10:43
by Haffi
rofl já kartafla í þvottavél :) :)

En ég fer aldrei af stað nema fólk sé komið í belti... Samt hef ég aulast til að sleppa því þegar ég fer úr götunni minni í götuna við hliðina eða eitthvað stutt. Sem má að sjálfsögðu ekki því að ég hef séð dúndur árekstra hérna fyrir ofan götuna mína :shock:

PostPosted: Thu 29. Jan 2004 10:55
by bebecar
Ég fer einmitt aldrei af stað fyrr en allir eru komnir í belti, líka þeir sem sitja aftur í. Þetta er svæsið myndskeið, eins gott að kaupa bíl sem er "mjúku" að innan næst :wink:

PostPosted: Thu 29. Jan 2004 16:11
by bjahja
Ég geri það sama, fer aldrei af stað fyrr en allir í bílnum eru í beltum. Sérstaklega ef þú ert í belti framí og einhver ekki í belti afturí, þá getur mannsekjan afturí dúndrast á þig og bara steindrepið þig!! Og svo maður tali ekki um fólk sem hefur börnin sín í belti, ég hef skrífað niður rúðuna og hálfskammað konu sem var með 2 börn afturí laus og hún í belti :wink:
En þetta mynband er rosalegt :shock:

PostPosted: Fri 30. Jan 2004 00:33
by Jss
Þetta er ROSALEGT myndband, ótrúlegt að sjá hann fljúga svona og síðan með hausinn út um hægri hliðarrúðuna afturí. :shock:

Ég geri einmitt það sama og þið að fara aldrei af stað fyrr en allir eru komnir í belti. Skil ekki fólk sem notar ekki belti. :hmm:

PostPosted: Fri 30. Jan 2004 00:38
by oskard
voðalega kemur alltaf leiðinlegt hljóð í svona árekstrum...

PostPosted: Fri 30. Jan 2004 01:17
by Haffi
já hundleiðinlegt hljóð í veltum :(

PostPosted: Tue 03. Feb 2004 08:48
by Qwer
Sjötturinn... þetta var svaðalegt. Gott að maður notar nú alltaf beltið. Svona að velta fyrir mér. Er kaupi ekki dauður? hann fer með hausinn út um afturrúðuna farðega megin...