bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

The Transporter, BMW í aðalhlutverki!
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=6&t=178
Page 1 of 1

Author:  saemi [ Mon 14. Oct 2002 08:53 ]
Post subject:  The Transporter, BMW í aðalhlutverki!

Ég skellti mér á The Transporter úti á Laugardaginn, og ég verð nú bara að segja að það er ágætis strákaræma.

Byrjar helv. vel, aðalpersónan er á E38 7 línu (735i ef eitthvað er að marka það sem sagt var í myndinni) og þar er þvílíkur eltingaleikur um Nice í Frakklandi. Þó svo að ekki sé þetta raunverulegt með öllu, a la Hollywood, þá er gaman að horfa á þetta. Án þess að segja of mikið, þá snýst helmingurinn af myndinni í kringum þennan bíl og keyrslu á honum, svo að BMW viftur ættu að geta verið sáttir við bílavalið.

Það er nokkuð flottur trailer á
http://www.transportermovie.com/home.html

undir: downloads/film clips/seatbelts

Með hilsen,
Sæmi

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/