Page 1 of 1

Breytingar á myndbandasíðunni

PostPosted: Sat 12. Oct 2002 16:45
by iar
Sælt veri fólkið.

Ég gat ekki horft lengur á leikinn við Skotana svo ég fór í að breyta aðeins myndbandasíðunni okkar.

Engar skrár hafa verið fluttar til svo tilvísanir hafa ekki breyst. Breytingarnar voru bara til að auðvelda utanumhald um myndböndin og lýsingar á þeim.

Ef þið skoðið einhver myndbönd endilega sendið mér þá lýsingu á viðkomandi myndbandi og látið nafnið á skránni fylgja með. Netfangið mitt er iar@bmwkraftur.com eða í sendið mér private message hér á spjallinu.

Það er mjög auðvelt að bæta við lýsingum og því fleiri sem skrifa lýsingar og senda því betra verður myndbandasafnið!

:D