Page 1 of 1
Jeremy Clarksons í TopGear heimsækir Ísland - í kringum ´93

Posted:
Fri 24. Feb 2006 05:19
by Svessi
Ég var eiginlega að leita að TopGear þáttum á google video og rakst á þetta.
Þótt sumt hafi breyst pínulítið og sumt dálítið ýkt þá þótti mér gaman að þessu.
Alltaf gaman að heyra hvað íslendingar eru góðir í ensku.
Gjörið svo vel:
Jeremy Clarksons í TopGear heimsækir Ísland

Posted:
Fri 24. Feb 2006 22:53
by Lindemann
þarna var hann ekki í topgear
þátturinn hét Motorworld
góður þáttur samt

Posted:
Fri 24. Feb 2006 23:15
by Einsii
Þetta var að hanns sögn mest áhorfði þátturinn á bbc í einhvern tima (Þessi islenski)


Posted:
Sat 25. Feb 2006 00:08
by Fjarki
En hvað er málið með íslendinga og ensku, núna meira en 10 árum seinna er þetta ennþá svona, hljómar eins og frumbyggjatal

Posted:
Sat 25. Feb 2006 01:57
by Arnarf
Fjarki wrote:En hvað er málið með íslendinga og ensku, núna meira en 10 árum seinna er þetta ennþá svona, hljómar eins og frumbyggjatal
Hefuru ferðast e-ð um Evrópu?
Til dæmis París, kann engan þar stakt orð í ensku. Svo þó hreimurinn okkar sé nú ekkert til að hrópa húrra fyrir okkur getum við alla vegað talað ensku

Posted:
Sat 25. Feb 2006 06:21
by IvanAnders
Arnarf wrote:Fjarki wrote:En hvað er málið með íslendinga og ensku, núna meira en 10 árum seinna er þetta ennþá svona, hljómar eins og frumbyggjatal
Hefuru ferðast e-ð um Evrópu?
Til dæmis París, kann engan þar stakt orð í ensku. Svo þó hreimurinn okkar sé nú ekkert til að hrópa húrra fyrir okkur getum við alla vegað talað ensku
that is a good point YA!
alveg satt, aðrir evrópubúar tala hana ekkert mikið betur, hefuru heyrt þjóðverja tala ensku? (ekki að þeir séu verstir, bara fyndnastir

)

Posted:
Sat 25. Feb 2006 15:56
by Angelic0-
Já, París er hryllingur !
Allir að bjóða manni eitthvað þegar maður labbar niður þá hluta bæjarins... og maður skilur EKKERT hvað er í gangi.. og þegar maður reynir að tjá sig á Ensku.. þá setja þeir bara upp voða lúrinn svip !

Posted:
Sat 25. Feb 2006 22:59
by saemi
Arnarf wrote:Til dæmis París, kann engan þar stakt orð í ensku.
Abbbabbbabbbbbbbb.
Ekki rugla saman að geta ekki og vilja ekki. Þessir hrokagikkir GETA alveg talað ensku flestir. En að þeir VILJI það og GERI.... það er af og frá
Það er best að vera svolítið þjösnalegur við þá á Íslensku fyrst ef þeir eru með múður. Þegar maður er búinn að blaðra á íslensku í smá tíma þá er eins og það rifjist ótrúlega mikil enska upp hjá þeim á skömmum tíma.

Posted:
Sun 26. Feb 2006 01:30
by Jónki 320i ´84
saemi wrote:Arnarf wrote:Til dæmis París, kann engan þar stakt orð í ensku.
Abbbabbbabbbbbbbb.
Ekki rugla saman að geta ekki og vilja ekki. Þessir hrokagikkir GETA alveg talað ensku flestir. En að þeir VILJI það og GERI.... það er af og frá
Það er best að vera svolítið þjösnalegur við þá á Íslensku fyrst ef þeir eru með múður. Þegar maður er búinn að blaðra á íslensku í smá tíma þá er eins og það rifjist ótrúlega mikil enska upp hjá þeim á skömmum tíma.
Einmitt það sem ég geri þegar ég er að ferðast í evrópu, þegar þeir vilja ekki tala ensku þá býð ég þeim bara annaðhvort íslensku eða ensku og í 95% tilfella velja þeir ensku


Posted:
Sun 26. Feb 2006 13:38
by Fjarki
Já hef ferðast eitthvað um Evrópu, og getur verið mjög erfitt að gera auðveldustu hluti, hvort sem það er að kaupa sér að borða eða tala um stjórnmál.
Og jú mikið rétt að gott er að kunna eitthvað en ekki neitt en eins og sæmi segir er þetta oft spurning um vilja, kunna ansi oft ensku en vilja ekki nota hana. Og þó að þeir sé kannski ekki góðir í ensku finnst mér nánast allt skárra en íslensku enskan okkar.

Posted:
Sun 26. Feb 2006 14:53
by finnbogi
saemi wrote:Arnarf wrote:Til dæmis París, kann engan þar stakt orð í ensku.
Abbbabbbabbbbbbbb.
Ekki rugla saman að geta ekki og vilja ekki. Þessir hrokagikkir GETA alveg talað ensku flestir. En að þeir VILJI það og GERI.... það er af og frá
Það er best að vera svolítið þjösnalegur við þá á Íslensku fyrst ef þeir eru með múður. Þegar maður er búinn að blaðra á íslensku í smá tíma þá er eins og það rifjist ótrúlega mikil enska upp hjá þeim á skömmum tíma.
haha gott hjá þér já ég þoli þetta ekki þeir kunna alveg ensku bara vilja sko
alls ekki tala hana þrjósku anskotar


Posted:
Sun 26. Feb 2006 15:32
by Alpina
í Paris þeir púa og blaðra
með pissandi hunda sem flaðra
mig langar i massör
maður með sjarmör
dömurnar þær kunna að daðra

Posted:
Sun 26. Feb 2006 15:34
by arnibjorn
Alpina wrote:í Paris þeir púa og blaðra
með pissandi hunda sem flaðra
mig langar i massör
maður með sjarmör
dömurnar þær kunna að daðra
