Thrullerinn wrote:
Angelic0- wrote:
aahahahaa.... ætli maður hafi ekki feilað samt nokkrum sinnum sjálfur..
Mér tókst t.d. að slá sjálfan mig með tennisspaða og braut tönn ásamt því
að rífa upp báðar varirnar.. það var svolítið fail

Ég á ennþá betri sögu....
Ég var í lúgunni á Ungó í Keflavík, á Chevrolet Silverado 1500 (10bolta GM hásing með ESAB)...
Upp í rassgatið á mér kemur Gul Honda Civic (stútfull af tæjurum) og fer að þenja sig, ég ákveð að tæta gúmmí yfir þá... tók við hammaranum mínum, henti honum í farþegasætið... smellti í L, stappaði bremsuna, traðkaði á gjöfina... vei... núna var farinn að koma reykur.... gellan í lúgunni alveg snar.... best að slæda í burtu.... jeij... fer út af steypunni og inn á malbikið og þá kom rosa hvellur.... og bíllinn sígur rólega niður bílstjóramegin að aftan.... (damn, sprengdi dekk hugsaði ég) og svo kom afturdekkið rúllandi framúr mér og öxullinn hangandi á....
Og Tæjaragrúppan að kafna úr hlátri.... ég var fljótur að missa kúlið þá...