bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

1328917 - E30 318i 1986 4 door - Platanengrun metallic
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=70443
Page 1 of 1

Author:  gstuning [ Sat 06. Dec 2025 19:25 ]
Post subject:  1328917 - E30 318i 1986 4 door - Platanengrun metallic

Þetta er nýjasta nýtt á dagskránni
Það var um nokkra E30 að velja og ég ákvað að fara í pre facelift og þennan græna lit. Ég er að fíla grænu hurðaspjöldin og græna teppið.
Það var í honum LPG einhvern tímann sem er þetta svarta lok fyrir aftan bensín lokið, það hverfur þegar þetta er málað einn daginn.

minnst ekni bíll sem ég hef átt síðan minn síðasti E30 fyrir 15árum allt annað hefur verið keyrt til tunglsins og tilbaka og meira með!

Plön:
1. Lappa uppá þetta til að fá TUV og geta keyrt, líklega stíflaður spíssi eða eitthvað í kveikjukerfinu því þetta gengur á 3 cylendrum, ein framdælan er mjög stíf. Annars virðist þetta bara vera í fínasta lagi, búið að skipta um marga slit hluti nýlega eins og síur, kveikjukerfis dót, bensín dælu, pústkerfi og svo framvegis. Laga sloppy shifterinn því ég þoli ekki svoleiðis.
2. Fitta tölvu frá Baldri, nýtt vélarloom með því
3. 10gíra 10R80 í þetta og tölvu frá Baldri til að stýra henni
4. Felgur, fjöðrun, fóðringar, önnur sæti, spoiler kit kannski (hvaða maður veit ekki enn líklega Mtech-1) og þess háttar til að gera þetta aðeins meiri looker, í hvaða röð veit enginn enn líklega felgur fyrst.
5+. Boost * Boost , compound M10B18 , 500hö ætti að duga. Kannski ITBs á undann sem smá stoppi stöð til að leika sér þar sem að ég á fullt af carbon fiber trumpets uppí hillu úr einhverjum Aston Martin LeMans kerrum.
6+. Betri öxlar og allt það til að deala við togið og lætin.
7+. rafmagns stýris stöng, vöðvastýrið er ekki að gera sig fyrir svona gamla kalla eins og mig.
8+. Stærri bremsur, alveg miklu stærri bremsur, er með dælur uppí hillu sem verða notaðar.
Inná milli eitthvað vel vandað 3d prentað dót þar sem vel á við.
9+. Mála í upprunalega lit með nýju kiti.

Helsta takmark er að halda bílnum að innan eins og E30 á að vera, engin stór skjár eða race mælaborð eða neitt þannig. reyna hafa þetta minimalískt. Mun framleiða eitt og annað til að viðhalda einfaldleikanum, enn uppfæra samt allt á bakvið með nýmóðins dótarií, finna einhverja smekklega leið til að sýna gíra og svo viðvaranir frá bílnum þegar á við. Svo vil ég geta keyrt þetta á autobahninu á þeim hraða sem mér sýnist, 10gírar mun hjálpa þar að vera ekki revva þessu of mikið á 150kmh, ég sé svo oft "spes" bíla á autobahninu bara á 100kmh, ég ætla ekki að vera einn af þeim.


Myndir:

Image
Image
Image
Image
Image

Author:  gstuning [ Sat 06. Dec 2025 19:58 ]
Post subject:  Re: 1328917 - E30 318i 1986 4 door - Platanengrun metallic

Það sem ég fann í dag var FPR lak í gegn og vélin var að fá auka bensín í gegnum vacuum slönguna. Enn það er samt eitthvað annað að sem ég þarf að fixa eftir að ég stal FPR af M10 vélinni sem situr á vélardynoinum, ætla að henda spíssunum í spíssa testerinn og sjá hvað setur. Ef það er ekki það þá gæti það verið kveikjukerfið enn það virðist vera í lagi. Ég eyddi góðum klukkutíma að leita að auka M10 spíssum sem ég á að eiga, enn eins og allir M10 toppar þá fann ég bara einn.

Þjappan var ágæt á öllum 11bör, engin kappaksturs tölur svosem enn sýnir að þetta ætti að vera gangandi, soldið slow á no4 að ná sér. Þegar ég tek spíssa tengin af þá virðist no1 vera dauður alltaf, þannig að líklega sá spíssi stíflaður, merkið frá tölvunni virkar samt. Hann er búinn að sitja mest megnis síðan hann kom frá Búlgaríu til Þýskalands fyrir nokkrum árum.

Author:  fart [ Sat 06. Dec 2025 21:47 ]
Post subject:  Re: 1328917 - E30 318i 1986 4 door - Platanengrun metallic

gstuning wrote:
Það sem ég fann í dag var FPR lak í gegn og vélin var að fá auka bensín í gegnum vacuum slönguna. Enn það er samt eitthvað annað að sem ég þarf að fixa eftir að ég stal FPR af M10 vélinni sem situr á vélardynoinum, ætla að henda spíssunum í spíssa testerinn og sjá hvað setur. Ef það er ekki það þá gæti það verið kveikjukerfið enn það virðist vera í lagi. Ég eyddi góðum klukkutíma að leita að auka M10 spíssum sem ég á að eiga, enn eins og allir M10 toppar þá fann ég bara einn.

Þjappan var ágæt á öllum 11bör, engin kappaksturs tölur svosem enn sýnir að þetta ætti að vera gangandi, soldið slow á no4 að ná sér. Þegar ég tek spíssa tengin af þá virðist no1 vera dauður alltaf, þannig að líklega sá spíssi stíflaður, merkið frá tölvunni virkar samt. Hann er búinn að sitja mest megnis síðan hann kom frá Búlgaríu til Þýskalands fyrir nokkrum árum.


Yes!! Project, grænt og lurbo!

Author:  bimmer [ Sun 07. Dec 2025 15:21 ]
Post subject:  Re: 1328917 - E30 318i 1986 4 door - Platanengrun metallic

Þetta verður töff.

Liturinn er flottur.

Author:  Mazi! [ Mon 08. Dec 2025 09:11 ]
Post subject:  Re: 1328917 - E30 318i 1986 4 door - Platanengrun metallic

Það verður gaman að fylgjast með þessu, til hamingju með töff bíl!

Skemmtilegur á litinn að utan og innan.

Author:  gstuning [ Thu 18. Dec 2025 20:25 ]
Post subject:  Re: 1328917 - E30 318i 1986 4 door - Platanengrun metallic

Jæja

Gengur ennþa ekki rett. Þjappan lookaði alveg nogu goð, engin kraftaverk
Flæði mældir spissanna sem voru i honum og þeir eru að flæða um 40% of litið.

OEM spissar
Image


þannig að eg keypti replacements, og auðvitað keypti eg odyrasta sem var hægt enn fra reputable söluaðila - Autodoc, enn skrytna var er að þeir komu með Bosch partanumeri a stimpluðu sem er fyrir M10B18, þessir kinjverjar enn brandið er bara eitthvað allt annað
!
Image

oem er 150cc / min , nyju flæða nogu nalægt 150cc og eru innan við nokkur prosent af hvorum öðrum, sem er eðlilegt i oem heiminum.
Image

Buinn að fara yfir kveikjukerfið oftar enn einu sinni og staðfest að þetta virðist allt vera að virka, enn samt eitthvað sem eg er ekki buinn að finna sem veldur lelegum gangi. Það stytiist i vandamalið allaveganna.

Enn að skemmtilegri hlutum.
Ætla að bua til ITBs a M10 velina svona a meðan maður er ekki farinn i turbo ennþa, þetta gerir næsta sumar bara skemmtilegt allaveganna. þetta a eftir að gefa 0-15hö enn það skiptir auðvitað engu mali þvi þetta er bara gert uppa hljoðið og viðbragðið, viðbragðið verður auðvitað aldrei neitt til að hringja i mömmu utaf þvi að velin er ennþa auðvitað bara steingeld. Ætla svo að 3d prenta plenums til að læra aðeins um loftflæðis hegðunina a milli mismunandi hannana.
Þetta er auðvitað gert on the cheap lika, fake Weber blöndungar sem kostuðu ekki neitt og Aliexpress manifold adapter sem kostaði ekki neitt.
Blöndungarnir notast bara sem loftgjöfin auðvitað, verður ekki neitt bensin þar.

Það verður MAF setur a þetta og meira til, MAFinn kemur af V8 Jaguar og dugar i 500hö einn og ser, hann er með tiðni utgang sem er mun betra enn 0-5v , enn tiðnin er alveg uppi 20khz sem er alveg of mikið, þannig að eg þarf að græja frequency divider til að na þessu niður i 2-5khz eða svo.

Svo til að einfalda enn frekar þa ætla eg að setja drive by wire a þetta þvi að tölvan fra Baldri er ready fyrir svoleiðis og finna mer throttle body sem eg modda til að keyra ITBs. Ætla ekki að henda E30 pedallanum heldur að nota pedalla skynjara frekar sem fer svo i tölvuna.

Image
Image

Turbo tal

Herna er 100-ish hö Pinto vel sem skilar svo 300hö með mildum blæstri, þannig að eg get ekki seð að 500hö verði eitthvað vandamal þegar maður er með compound a þessari m10, allaveganna loftflæðilega seð, halda þessu saman verður annað mal auðvitað.

Author:  gstuning [ Sat 20. Dec 2025 18:50 ]
Post subject:  Re: 1328917 - E30 318i 1986 4 door - Platanengrun metallic

Jetronic tölvan eitthvað skemmd, reference voltin fyrir AFM voru 8.5v sem er eitthvað furðulegt, AFM er líka bilaður.

Ég henti því í pnp adapter sem leyfir mér að tengja LPC8 tölvu í stað jetronic og stýra spíssunum, enn hann var búinn að runna ríkur svo oft og svo lengi að kertin voru skemmd, þannig að ég þarf að reyna aftur með ný kerti eða virkandi kerti til að reyna fá meira vit í þetta. notaði oem TDC merkið frá kveikjukerfinu til að fá RPM í tölvuna og svo bara map slanga og þetta fór beint í gang.

Það er líka útblástur í kælikerfinu, leak down test var gott, compression test nógu gott. Enn ef það er útblástur í kælikerfinu og það er ekki verið að dælast í það þá er það ekki heddpakkning heldur frekar skemmt bore neðar í borinu sem sér aldre háan þrýsting enn lekur inn kælivökva samt.
Vatnskassinn hélt líka ekki nema 5psi þannig að hann verður að fara úr líka.

Vélin verður bara að fara út og ég hendi einni af hinum m10 vélunum ofaní í staðinn.
Best að henda LPC8 tölvunni í bara og runna þetta á standalone og losa sig við allt þetta gamla víra rusl. Ég er með eina skemmtilega pælingu sem ég læt reyna á þegar ég bý til loomið, kemur í ljós ef það virkar eitthvað eða ekki.

Image

Author:  gstuning [ Sat 10. Jan 2026 09:37 ]
Post subject:  Re: 1328917 - E30 318i 1986 4 door - Platanengrun metallic

Nýtt E30 víra cover á leiðinni.
Eins næs og M3 dótið er þá þarf ég auðvitað eitthvað sérstakt til að gera þetta eins og ég vil.
Á eftir að laga stöður á götum og svona enn þetta er að verða komið að mestu.


Image

Image

Image

Author:  gstuning [ Sat 10. Jan 2026 15:28 ]
Post subject:  Re: 1328917 - E30 318i 1986 4 door - Platanengrun metallic

Kominn með combustion á öllum cylendrum.
Bjó til smá temp loom til að keyra M50 COP á vélinni því að ég var ekki búinn að endurnýja R8 kefla safnið.
Og 60-2 framan á vélina.

https://www.youtube.com/shorts/1YztsZGOBlM

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/