bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
2002 BMW 330i https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=70194 |
Page 2 of 3 |
Author: | Johann2326 [ Sun 12. Nov 2023 21:20 ] |
Post subject: | Re: 2002 BMW 330i |
Í júní og júlý var skipt um mótorpúða, gömlu voru sennilega original m.v ástandið. Skipti út sport stýri fyrir M3 stýri, stórt upgrade að mínu mati og ///M saumarnir eru nice touch þótt þetta sé bara 330i Skipti um hjólalegur báðu megin að framan daginn fyrir bíladaga og skellti mer svo norður. Svo var farið í það sem ég er búinn að vera á leiðinni að gera síðan bíllinn var keyptur, beinskipt swap! Fékk gírkassa, swinghjól og skiptir úr 328i ekinn 170þús km Tók gírkassan í gegn og skipti um alla shift pins í kassanum og pakkdósir. Stirðir shift pins valda því að skiptirinn hallar t.d til hægri eða er stífur og leiðinlegur í gíra. Skipti um allar fóðringar í skiptir. Fékk notað pedalasett að utan Restin af dótinu er nýtt oem: Guibo, Drifskaft, þræll og master, kúpling, lagnir, gírkassapúðar o.fl Víraði þetta allt saman inn eins og oem, með kúplingsrofa o.fl. Svo fór ég með bílinn í mapp, þá var sett bsk mapp í bílinn sem hjálpar mikið með driveability, það var slökkt á secondary air pump (SAP) kerfinu og breytt mpg í l/100km Vægast sagt er bíllinn allt annar! Miklu sprækari og skemmtilegri í akstri, sérstaklega þar sem hann er frekar stuttgíraður með sjálfskipta drifinu (3.38 hlutfall) Síðan fjarlægði ég allan SAP búnaðinn úr bílnum. Þetta er nokkuð veginn allt sem er búið að gerast í bílnum í ár, örugglega eitthvað sem er að gleymast. Svo er ég bara búinn að vera keyra bílinn, fór á Bmw hittinginn sem heppnaðist mjög vel fannst mér og gaman að sjá alla þessa flottu bíla og tala við fólk sem er með jafn mikla dellu og maður sjálfur. Sent from my iPhone using Tapatalk |
Author: | Mazi! [ Sun 12. Nov 2023 22:55 ] |
Post subject: | Re: 2002 BMW 330i |
Mig hefur alltaf langað að prófa eiga góðann 330i e46 BSK Flottur bíll hjá þér, það er ótrúlegt hvað þykka ///M stýrið er mikið upgrade |
Author: | Johann2326 [ Sun 12. Nov 2023 23:09 ] |
Post subject: | Re: 2002 BMW 330i |
Mazi! wrote: Mig hefur alltaf langað að prófa eiga góðann 330i e46 BSK Takk fyrir það Flottur bíll hjá þér, það er ótrúlegt hvað þykka ///M stýrið er mikið upgrade Þetta eru skemmtilegir bílar, fínn kraftur, lítil eyðsla m.v og ekkert mál að nota sem daily driver ef maður vill. Margt sem mætti betur vera í þessum bíl finnst mér en er að reyna stimpla það inn í kollinn á mér að þetta er 21 ára gamall bíll og verður seint fullkominn Næsta skref er subframe úr, styrkja gólf og skipta um allar fóðringar svona fyrst maður er löngu kominn út í ruglið. Sent from my iPhone using Tapatalk |
Author: | AFS [ Mon 13. Nov 2023 20:27 ] |
Post subject: | Re: 2002 BMW 330i |
Geggjaður, orðinn að þvílíkri veislu þessi bíll hjá þér |
Author: | Johann2326 [ Tue 14. Nov 2023 22:43 ] |
Post subject: | Re: 2002 BMW 330i |
AFS wrote: Geggjaður, orðinn að þvílíkri veislu þessi bíll hjá þér Takk fyrir það Skemmtilegt að sjá að aðrir hafi líka gaman að þessu, Z3 hjá þér er einmitt geggjaður líka Sent from my iPhone using Tapatalk |
Author: | Johann2326 [ Sun 26. Nov 2023 10:47 ] |
Post subject: | Re: 2002 BMW 330i |
Lítið update núna Tók M3 stýrið úr bílnum vegna þess að neðra plastið var ekki í réttum lit og leðrið á stýrinu var þreytt. Tók plöstin af og málaði þau Fór svo og lét skipta um leðrið á stýrinu og er þetta útkoman Er síðan að bíða eftir nýju ///M merki neðst á stýrinu. Sent from my iPhone using Tapatalk |
Author: | Mazi! [ Sun 26. Nov 2023 13:37 ] |
Post subject: | Re: 2002 BMW 330i |
Geggjað að sjá stýrið!! hver saumaði nýtt á það? |
Author: | Johann2326 [ Sun 26. Nov 2023 13:41 ] |
Post subject: | Re: 2002 BMW 330i |
Mazi! wrote: Geggjað að sjá stýrið!! Já miklu betra svona!hver saumaði nýtt á það? Vinnustofa davíðs heitir þetta, kall með skúr í kópavogi Sent from my iPhone using Tapatalk |
Author: | Johann2326 [ Tue 19. Mar 2024 17:26 ] |
Post subject: | Re: 2002 BMW 330i |
Eitthvað búið að gerast Setti stýrið aftur í bílinn loksins Svo er næst á dagskrá að fara í allt í hjólabúnaði að aftan Byrjaði á því að kaupa annað subframe að aftan og fór með það í blásun og pólýhúðun. Keypti síðan poly fóðringar í það og smellti þeim í. Þetta eru einu poly fóðringarnar sem fara í hjólabúnað að aftan, rest verður original gúmmí. Keypti annað sett af listum og lét mála þá í háglans svörtum (loksins að klára að shadowlinea) Gleymdi greinilega að taka mynd þegar þeir voru allir komnir á, en hér sést vel munurinn á gamla og nýja. Þarf svo að finna tíma í að setjast niður og panta rest í hjólabúnað að aftan Sent from my iPhone using Tapatalk |
Author: | bimmer [ Thu 21. Mar 2024 10:11 ] |
Post subject: | Re: 2002 BMW 330i |
Vel gert! |
Author: | AFS [ Sun 24. Mar 2024 22:24 ] |
Post subject: | Re: 2002 BMW 330i |
Þetta er orðinn alveg virkilega huggulegur bíll |
Author: | Johann2326 [ Sat 30. Mar 2024 21:04 ] |
Post subject: | Re: 2002 BMW 330i |
Smá dund í dag á meðan það er verið að bíða eftir varahlutum. Sá þessa filmu í Bauhaus sem er ætluð á húsgögn og ákvað að prófa filma innréttingarlistana, þar sem mér fannst þeir vera full dökkir miðað við að allt í innréttingu er svart. Hér má sjá hvernig original listarnir eru Fyrstu listarnir klárir Hér eru svo allir listar klárir og komnir í bílinn, finnst þetta koma mjög vel út persónulega Þá er innréttingin orðinn nokkuð eins og ég vil hafa hana Næst var að sprauta hattahilluna svarta aftur, orðin vel upplituð Miklu betra svona Fannst vanta aðeins uppá bassann í bílnum svo mig langaði að henda bassakeilu í skottið á bílnum. Magnari er falinn undir gólfinu og vírar faldir þar sem hægt er. Stillt mjög hóflega í bili og hljómgæðin orðin þvílíkt góð núna finnst mér. Hugsa að næsta skref sé að skipta út oem HK magnaranum Meira var það ekki í bili Sent from my iPhone using Tapatalk |
Author: | Daníel Már [ Sun 31. Mar 2024 09:28 ] |
Post subject: | Re: 2002 BMW 330i |
Innréttingarlistanir eru geggjaðir svona ! Hvaða sprey notaðirðu á hilluna afturí ? Þyrfti að spreyja mína aftur svarta. |
Author: | Johann2326 [ Sun 31. Mar 2024 09:55 ] |
Post subject: | Re: 2002 BMW 330i |
Daníel Már wrote: Innréttingarlistanir eru geggjaðir svona ! Hvaða sprey notaðirðu á hilluna afturí ? Þyrfti að spreyja mína aftur svarta. Takk fyrir það! Keypti bara svona vínyl spray í bílanaust, myndi sennilega kaupa 2 brúsa ef ég væri að gera þetta aftur. Sent from my iPhone using Tapatalk |
Author: | Johann2326 [ Mon 22. Apr 2024 00:34 ] |
Post subject: | Re: 2002 BMW 330i |
Núna er heldur betur búið að betrumbæta afturendan á þessum. TL:DR er að það er allt nýtt í undirvagni að aftan En fyrir þá sem langar að lesa: Byrjaði á því að taka drif, öxla og trailing arms úr bílnum. Sandblés lokið á drifinu, öxulflangsana og slípaði niður drifið með vírhjóli. Svo var það málað. Öxlar fengu sömu meðferð, voru blásnir og málaðir Virðist ekki eiga eftir mynd af þeim, en sjást seinna :p Trailing arms voru rifnir í spað og fór með vírhjólið á þá, bracket á þeim voru blásin og máluð Allar fóðringar endurnýjaðar, nýjar legur, rykhlífar o.s.frv. Svo var það bíllinn, það var allt rifið úf botninum á honum að aftan, þrifið gólfið í honum. Hreinsað allt ryð niður í bert járn. Setti svo rust converter, grunnaði, notaði grjótvörn og svo holrúmsvax inn í öll götin. Keypti original bremsurör og skipti um þau báðu megin að aftan, ásamt stoptech vírrofnum slöngum. Sauð styrktarplötur fyrir hjólabitan í gólfið á honum, skemmtilegt að sjá að það voru engar sprungur komnar. Nýjir gormar, gormapúðar, neðri spyrnur, allar fóðringar, bensíntankur og plasthlífar þrifið, áfyllingarrör og evaprör þrifin. Og svo miklu fleira sem ég nenni ekki að telja upp :p Læt myndirnar tala fyrir mig Að lokum var bíllinn auðvitað hjólastilltur og núna get ég sofið betur á nóttunni vitandi að þetta er allt komið í stand Sent from my iPhone using Tapatalk |
Page 2 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |