bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
E30 1990 M50B25 - MAZI https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=70187 |
Page 6 of 8 |
Author: | Mazi! [ Sat 15. Jan 2022 17:21 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - E30 M3 5LUG swap BLS:5 |
bimmer wrote: Geggjað. En af hverju poly? Var reyndar ekki með pólý í M3 en var með pólý í e30 touring sem ég átti fyrir löngu, fannst það fínt þá en það er samt ansi langt síðan ég fór milliveginn, hægt að fá þrjá stífleika hjá Garagistic,, þeir vilja meina að 95a sem er millivegurinn hjá þeim sé aggressive street / track pakki Quote: 95a is great for dual purpose aggressive street and track applications pælingin er svo auðvitað bæði að endurnýja fóðringarnar sem eru 30ára+ og ónýtar ásamt því að fá meira "feel" í undirvagn þessi bíll verður samt alls enginn brautarbíll (nema kanski ein og ein æfing?) en hann á að vera skemmtilegt götutæki sem þarf ekki að vera allt fyrir þægindin. þetta er svo bara byrjunin hvað afl varðar,, þykir líklegt að næsti vetur fari í turbo væðingu |
Author: | bimmer [ Sun 16. Jan 2022 15:29 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - E30 M3 5LUG swap BLS:5 |
Mazi! wrote: þetta er svo bara byrjunin hvað afl varðar,, þykir líklegt að næsti vetur fari í turbo væðingu Grunaði þetta |
Author: | Mazi! [ Tue 25. Jan 2022 23:10 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - E30 M3 5LUG swap BLS:5 |
það bætist alltaf meira í 5lug safnið... fékk smá pakka í dag frá USA,,, Notaðar E30 M3 bremsudælur að framan ásamt kjömmum.. þetta er hætt í framleiðslu svo ég gat ekki keypt nýtt eins og flest annað kostaði ógeðslega mikið og erfitt að finna og samt 30ára gamalt drasl sem ég þarf að sandblása og taka upp Þarf að kaupa þéttisétt og stimpla í þetta,, sandblæs svo allt og mála voða fínt |
Author: | bimmer [ Wed 26. Jan 2022 08:48 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - E30 M3 5LUG swap BLS:5 |
Næs! En hefði ekki verið hægt að sourca eitthvað aftermarket sem virkaði betur? Mv. plön um aflaukningu sko..... |
Author: | Mazi! [ Wed 26. Jan 2022 17:54 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - E30 M3 5LUG swap BLS:5 |
bimmer wrote: Næs! En hefði ekki verið hægt að sourca eitthvað aftermarket sem virkaði betur? Mv. plön um aflaukningu sko..... Jú klárlega þessar dælur + diskar og klossar hefðu kostað jafn mikið og D2 BBK kit og planið var eiginlega að fara í slíkt en eftir að hafa skoðað það nánar stenudur bremsudælan svo mikið út fyrir höbbinn enda eitthvað 6 eða 8 stimpla risa dót sem þýðir það að felguúrval verður leiðinlega takmarkað og lame að mínu mati ákvað því að fara bara í orginal M3 bremsur allann hringinn og ætla kaupa einhverja góða diska og klossa,,, Svo er þetta pínu kúl,,, þetta notast við orginal dælur: https://www.ebay.com/itm/255011337876?h ... SwgJ5gwTSE |
Author: | Kristofer [ Fri 28. Jan 2022 14:38 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - E30 M3 5LUG swap BLS:5 |
Lýst vel á þetta! Myndi sjálfur einmitt alltaf tryggja að bremsukerfið sé í eins góðu standi og það gæti mögulega orðið, áður en ég færi að íhuga að skipta þessu út. Mæli með að kíkja á https://mtechniqueauto.com ef þú vilt hafa ABS kerfið uppá 10. Síðan má náttúrulgea ekki gleyma því að dekk eru besta upgrade-ið, í flestum tilfellum. |
Author: | Mazi! [ Fri 28. Jan 2022 17:16 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - E30 M3 5LUG swap BLS:5 |
Stór pakka dagur í dag! E30 M3 ATE bremsudælur b/m að aftan E30 M3 Zimmermann bremsudiskar að aftan Þreifari að framan Hjólalegur b/m að aft. orginal Öxulrær að aftan Handbremsuborðar Gormasett í handbremsu Strekkjarar í handbremsu 2stk handbremsubarkar jafnvægisstangar endar að aft b/m Öxulhosur innri og ytri b/m Bremsuröra sett Nýr miðstöðvarmótor Svo kom þessi ógeðslega þungi pakki frá Kaliforníu með SHOPUSA,,, með notuðum diskabremsuspyrnum b/m að aftan og 2x öxlum af sverari gerðinni (bíllinn er bara með skálabremsur svo ég þurfti að panta þetta) Ireland Engineering vírofnar bremsuslöngur allann hringinn Nú er allt komið sem vantar nema: hjólalegur að framan diskar og klossar að framan þéttisétt og stimplar í framdælur rykhlífar að framan Ballansendar að framan. Næsta skref er bara að rífa og tæta allt undan bílnum, byrja sjæna upp þessar spyrnur og öxla,, skipta um fóðringar og púsla saman 5 lug |
Author: | bimmer [ Wed 02. Feb 2022 14:05 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - E30 M3 5LUG swap BLS:5 |
Geggjað - allt að gerast! |
Author: | Mazi! [ Tue 22. Feb 2022 21:01 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - E30 M3 5LUG swap BLS:5 |
Alltaf lendir meira og meira dót sem vantar í þetta e30 m3 rykhlífar að fr. e30 m3 ballansendar að fr. e30 m3 spennur í bremsudælur að fr. ný e30 spyrnufóðringa augu að framan,, einhverjir boltar, lok, skrúfur ofl.. Upptektarsett í e30 m3 bremsudælurnar að framan Bremsudælurnar verða sandblásnar og málaðar með þessu lakki,, ég stal þessari hugmynd frá Sreten í m539 restorations á youtube þetta er nautsterkt lakk sem maður blandar herði útí og sérstaklega hugsað á bremsudælur,, tók að sjálfsögðu silfurgráann lit. Svo kom smá meira... nýr hraðamælaskynjari í drifið, tengið í skynjarann, baulugúmmí og ballastangarenda festingar að aftan ofl smá drasl. Fékk ballansstöngina að aftan notaða (er smá ryðguð,, spæni af henni lakkið og mála) og svo er þetta e32 750 mastercylender sem ég ætla skella í bílinn Spyrnufóðringar komnar í augun að framan nýr hraðamælaskynjari kominn í drifið Svo er algengt að húsið á tenginu við hraðaskynjarann verði stökkt og lélegt svo ég splæsti í það byrjaði á að þrífa spyrnunar sem komu að utan rækilega áður en ég færi að strípa þær Og allt komið úr spyrnunum, mun nota öxlana sem ég fékk með þessum spyrnum því þeir eru sverari týpan af e30 öxlum næst var rassgatið á bílnum reist upp og allt slitið undan honum að aftan,,, mun ekki nota neitt áfram á þessari mynd nema subframeið sjálft Þetta fór þokkalega auðveldlega úr fyrir utan að fóðringin v/m brotnaði í bílnum sjálfum, ég náði brotinu úr boddíinu með því að kaupa mér risa bor og bora draslið úr Losaði subframeið frá skálabremsu ruslinu sem kom úr bílnum og þreif það,, eftir að hafa skoðað spyrnurnar og subframeið þá er þetta allt í fínu ástandi, bara smá yfirborðsryðgað hér og þar, ætla því að skutla þessu í sandblástur og mála áður en ég set allt saman svo eru það öxlarnir sem ég fékk með spyrnunum,, það er ekkert slag í þeim en þeir eru ljótir og hosur eru smá morknar. reif þá í sundur, slípaði upp, málaði og setti saman með nýrri feiti og öxulhosum annar öxullinn klár og hinn eftir |
Author: | Mazi! [ Tue 19. Apr 2022 22:35 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - E30 M3 5LUG swap BLS:5 |
Kominn tími á update,, báðir öxlar klárir með nýjum hosum og málaðir að hluta til það var smá bras að ná gömlu subframe fóðringunum úr en þær nánast láku úr við að hita þær rækilega Gekk frá spyrnum fyrir sandblástur með trékubbum til að sandurinn skemmdi ekki legusætin Allt klárt í blástur Komið úr blástur Ákvað að kaupa styrkingar sett í hjólabúnaðinn fyrst allt er hvort sem er í steik og í sundur Subframe málað og klárt Spyrnur málaðar og klárar þetta komið saman og klárt til að fara undir bíl Komið saman að aftan,,, KW Variant 1 og allt annað nýtt Svo kom lítil sending með legum/höbbum að fr. diskum og klossum frá Zimmermann E30 M3 bremsudælurnar sem ég keypti notaðar komnar úr blástur Málaðar Og dælurnar komnar saman með nýjum stimplum, gúmmíum ofl Komið saman að framan, með póly spyrnufóðringum, vírofnum bremsuslöngum frá IE ofl (á eftir að herða stóru rærnar) Þarsem bíllinn er kominn með allann undirvagn úr E30 M3 og þarafleiðandi M3 bremsurnar líka sem eru stærri og betri en í venjulegum e30 keypti ég master cylender úr e32 750 (þessi efri) e32 750 master kominn í nú er þetta ansi langt komið,, bara smá frágangur eftir ásamt því að lofttæma bremsur ofl og auðvitað finna 5gata felgur undir bílinn |
Author: | Logi [ Wed 20. Apr 2022 09:12 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - E30 M3 5LUG swap BLS:5 |
Þetta er hrikalega flott - þvílíkur metnaður |
Author: | bimmer [ Wed 20. Apr 2022 09:41 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - E30 M3 5LUG swap BLS:5 |
Vel gert - farið alla leið! |
Author: | Mazi! [ Sun 24. Apr 2022 22:24 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - E30 M3 5LUG swap BLS:5 |
Skipti um tengið einnig fyrir hraðamælinn Allt komið saman Lofttæmdum bremsur og allt er nú klárt Svo keypti ég felgur undir bílinn Style 32 17" staggered 17x8" og 17x9" Hann er klár í bili, fer í hjólastillingu í næstu viku,, er alveg ramm vitlaus að framan eftir þessar framkvæmdir nú verður bara rúntað og bónað bíllinn keyrir alveg eins og draumur! fjöðrunin er frábær, læsingin í drifinu svínvirkar og allt er í toppmálum Árni og Vignir félagar mínir eiga miklar þakkir skilið fyrir aðstoðina í vetur! |
Author: | bimmer [ Fri 29. Apr 2022 15:48 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - E30 M3 5LUG swap BLS:5 |
Massaflottur!!! Eða er það Mazaflottur???? |
Author: | Mazi! [ Sun 15. May 2022 12:58 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - E30 M3 5LUG swap BLS:5 |
Keypti mér einhverja gamla Canon vél um daginn og ákvað að prófa fikkta við smá myndatöku á bílnum |
Page 6 of 8 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |