Kominn tími á smá update
rafgeymirinn var dáinn eftir vetardvalann, svo ég splæsti í stæðsta geyminn sem passar í e30 (100ah Varta)
fékk svo þetta fína handbremsu handfang frá Póllandi,, leðrað með ///M saumum í stíl við stýrið sem var tekið í gegn
passar vel við stýrið
Gamla draslið úr
nýja í
svo keypti ég M3 Evo Rauð belti notuð á eBay á helling af peningum,,, nema hvað...... eftir að hafa skoðað þau vel er ég pínu hræddur um að hafa verið tekinn pínu ósmurt..
grunar að þetta séu venjuleg e30 belti sem búið er að fiffa eitthvað en ég svosem veit það ekki
looka samt vel,,, byrjaði á því að festa þau útdregin og þrífa þau í drasl og silikon sprauta þau svo
ógeðslega kúl belti samt, næsta skref er bara að kaupa M3 Evo framsætin og afturbekk einn daginn
svo kom upp pirrandi dæmi, bíllinn fór að éta bremsuvökva samt var enginn leki sjáanlegur neinstaðar.. eftir smá rannsókn á bílnum kom í ljós að e32 750 mastercylenderinn
var farinn að leka í gegnum sig og bremsuvökvinn sem var horfin fannst inni í brakeboosternum
líklegast væri réttast að skipta um boosterinn eftir þetta bremsuvökva bað að innan..
en ég ákvað að sjúga þetta innan úr boosternum og dæla bremsuhreinsi í hann og sjúga meira til að hreinsa hann að innan,, vonandi verður hann í lagi eftir þetta... en ég keypti nýjann ATE mastercyl,
frá Fastparts.is (BTW geggjum þjónusta hjá þeim.. tók 3 daga)
gamli vs nýji.. pínu fyndið að þessi master er "Ended" hjá BMW en er framleiddur af ATE fyrir BMW, það var þó hægt að panta hann frá ATE
en þá er búið að fræsa BMW merkið burt
komið saman og lét konuna lofttæma með mér sem gekk mjög vel
er kominn með nýjann bílskúr sem er mjög fínn,, eini gallinn er að jarðvegurinn er frekar siginn.. þessvegna fer bíllinn ekki inn og út nema með þessum DOKA plötum
Eins og staðan er núna þá er hann bara klár í sumarið, ætla að fara með hann í skoðun bráðum sem hann ætti að rúlla í gegnum vandræðalaust