bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=63128
Page 1 of 3

Author:  Bandit79 [ Thu 12. Sep 2013 19:58 ]
Post subject:  BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff

Keypti þennann fyrir 2 mánuðum eða svo.
Fæ lánaðar eldri myndir frá fyrri eiganda. Hann verður að láta mig vita ef það er ekki í lagi.

En basic info :thup:

BMW E34 Sedan
04/1991
M50B25 non vanos
192 HP
245 NM
25% sperr drif
SSK .. en fékk BSK M50 kassa með.
Ekinn 236.000
Skoðaður 2014
18" Staggered Artec felgur 8" framan og 10" aftan
16" vetrarfelgur á lala dekkjum
Framleiddur án hvarfakúts
Svört leður innrétting í mjög góðu ástandi
Armpúðar
Aftakanlegur krókur .. en krókinn vantar
Hiti í sætum
Stóra OBC
CD/MP3/AUX headunit
BMW Hi-fi system
Rafmagn í öllum rúðum
Samlæsingar
Lækkaður .. veit þó ekki hversu mikið.. þarf að kanna það betur
Tvískipt miðstöð

Þegar ég kaupi bílinn er hann í alls ekki góðu ásigkomulagi.
Fyrri eigandi bombaði á kant til að forðast árekstur og beyglaði eina Artec felguna en
hún beyglaðist bara.. álið rifnaði ekki sem betur fer. Ég býst við að fara með hana í
áliðjuna á næstu dögum þegar tími gefst.
Stýrisbúnaður hafði ekki gott af þessum kannti. Það þurfti að skipt um stýrisupphengjufóðringu,balansstangarenda,
aftari spyrnur að framan.
Einnig eru allir demparar búnir en gormar eru í lagi.
Mótstaðan í bensíntanki er nánast brotin í tvennt! hvernig það gerðist er góð spurning :lol: Skúli reddar :)
Frambrettin eru nánast horfin niðri við sílsana.. Skúli reddar :)
Afturhjólalega v/m var alveg kapútt
ABS-krans v/m aftan vantar tönn, þannig að ABS er alltaf að stríða á lágum hraða.
Bremsurör v/m aftan voru kapútt. Sekskantur á nipplum var horfinn.
Fyrri eigandi sagði að hann væri með einhverja vélarbilun. Bíllinn var að drepa á sér þegar vélin næði
vinnsluhita. Það kom í ljós að ventlalokspakkningin var handónýt og 3 öftustu kertagangarnir voru fullir af olíu.
Sjálfskiptingin var að haga sér undarlega með hörðum skiptum og eins og hún væri alltaf í "N" þegar ég t.d keyrði upp
að hringtorgi og bremsaði og ætlaði að gefa inn aftur út úr torginu. Þá var revar hann bara og þurfti að bíða í 2-3 sek til að
hún kæmi sér í þrep. Einnig var hún ekkert ánægð með að fara í efsta þrepið.
Bremsur að framan þarf að skipta út. Diskar hafa verið rendir og eru þeir sléttir og fínir en orðnir vel þunnir. Klossar eru samt nýlegir
handbremsuborðar að aftan eru orðnir of slitnir, ekkert nema nýtt þar kemur til greina
Það þarf að skipta um bremsuþreifara að aftan
Eithver ógeðsleg sveppasía var komin í húddið en orginal boxið fylgdi með.
Svo var öryggið fyrir framljós v/m kapútt :)

Svo það var bara ekkert annað í stöðunni en að gera greyið gott.

Það sem ég er búinn að gera :

Skipta um stýrisupphengjufóðringu h/m
Skipta um aftari spyrnu v/m framan
Skipta um balansstangarenda h/m framan
Skipta um ventlalokspakkningu, þrífa kefli og tékka kerti
Skipta um hjólalegu v/m aftan
Skipta um báðar bremsuslöngur og rör v/m aftan
Tékka á skiptingu, fylla á og láta skiptingu læra upp á nýtt. Smooth as a babies butt núna :thup:
Skipta um öryggi fyrir framljós v/m
Þvo allann vélarsalinn, orðinn ansi snyrtilegur núna. Var orðinn ógeðslegur útaf olíuleka.
Hennti þessari sveppasíu og kom orginal boxinu fyrir
Skipta um olíu og olíusíu, OEM auðvitað
Skipta um bremsuvökva á öllu kerfinu

Svo er bara að halda áfram...

Ný mótstaða fer í tankinn núna um helgina
Fæ brettin á morgun og verða þau græjuð fyrir sprautun
Þarf að redda dempurum allann hringinn
Býst við að panta allt í bremsur frá DK ásamt aftari spyrnu h/m framan, handbremsudóti og eithvað meira smádót
Þarf að redda nýrri rúðuþurrku v/m
Láta dökku afturljósin á aftur, þau voru tekin af vegna skoðunar
gera Hella dark look á framljósin
Kaupa smókuð stefnuljós að framan
Kaupa eða græja shadowline nýru
Henda framfelgu í réttingu og redda nýjum dekkjum
Sjá hvort að ég geti fundið allt það sem vantar í BSK swappið. Er bara með kassann þannig að þetta er slatti sem vantar.
Alþrif að innan og bera á leðrið
Massa kvikindið
og keyra..........

Annars er þessi bíll alveg lygilega þéttur! allar hurðar lokast eins og þær voru nýjar. Maður heyrir lítið vegarhljóð inn í bílnum
og þrátt fyrir slappa spyrnu og ónýta dempara. Allt rafmagn í virkar og engin pixla vandræði. Vélin gengur rosalega ljúft og hljóðið er
nákvæmlega eins og það á að vera 8) Undirvagn er mjög heill og engin göt að finna þar. Það þarf að vinna soldið í honum og eyða smá
en hann er vel þess virði að bjarga.

Nokkrar myndir frá síðasta ári. Og þetta eru myndir frá fyrri eiganda. Hann er aðeins skítugari og á vetrarfelgum í dag.
Kem bráðum með aðrar myndir og mynda uppfærslur

Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image

Kv. Helgi

Author:  ömmudriver [ Thu 12. Sep 2013 21:23 ]
Post subject:  Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff

Til hamingju með að vera kominn á E34 og plönin hljóma vel!

Var vökvinn á skiptingunni orðinn gamall og/eða vantaði slatta á hana?

Author:  Bandit79 [ Thu 12. Sep 2013 22:52 ]
Post subject:  Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff

ömmudriver wrote:
Til hamingju með að vera kominn á E34 og plönin hljóma vel!

Var vökvinn á skiptingunni orðinn gamall og/eða vantaði slatta á hana?

Vökvinn var nýlegur og sían líka. En það var ekki fyllt rétt á hana og svo hafði hún gott af því að "læra" upp á nýtt :)

Author:  Bandit79 [ Sun 15. Sep 2013 12:09 ]
Post subject:  Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff

jæja þessi skipting er ekki að virka þrátt fyrir allt saman.

Ætlaði að skjótast í áliðjuna á föstudaginn og var á ljósunum við sprengisand. Gef bílnum smá inn og hann skellir sér
allt í einu í trans-mode. Ég rúllaði honum varlega niður til áliðjunar og stoppaði þar. Svissaði af honum og tók
lykilinn úr og beið í nokkrar sekúndur. Svissaði aftur á hann og þá virkaði hún rétt.
Svo gerði hann þetta aftur í gær laugardag og byrjaði að láta skringilega eins og skiptingin fer í allt of há þrep
miðað við hraða og snúninga. Nánast eins og að hún sé að kæfa bílinn.

Ef það er eithvað sem ég hata þá er það SSK vesen í þessum bílum!!

Þannig að núna ætla ég að sanka að mér hlutum í BSK swap. Ég á kassann en vantar allt hitt :lol:

En ég náði þó að laga tankmótstöðuna um helgina :) Gott að geta séð hversu mikið bensín er
á bílnum.

Author:  Bandit79 [ Sun 29. Sep 2013 15:22 ]
Post subject:  Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff

Eithvað að gerast :)

Var að panta nýja aftari spyrnu með fóðringu h/m
nýjann stýrisenda (báða enda og nýja millistöng)
Nýja loftsíu
og nýja bremsudiska að framan
Svo gat áliðjan bjargað 18" framfelguni.. hann var ekkert alltof bjartsýnn til að byrja á
en hann gat á endanum rétt hana .. þá er þessum felgugangi bjargað 8)

Svo breytti ég mælaborði og borðtölvu yfir í ensku

Hann lætur stundum leiðinlega. Eins og hann kokar við hæga inngjöf og alltaf í kringum 1500-1600 RPM
Þarf að kanna vacuum leka eða þá að MAF´inn sé að gefa sig :( Eyðslumælirinn fer líka alveg í rugl þegar hann gerir þetta og
sýnir alltof mikla eyðslu.

Any ideas ?

Author:  Alpina [ Sun 29. Sep 2013 15:41 ]
Post subject:  Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff

M50 er víst tiltölulega þekktir fyrir leiðinlega hægagangs-rofa

Author:  Bandit79 [ Sun 29. Sep 2013 18:09 ]
Post subject:  Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff

Alpina wrote:
M50 er víst tiltölulega þekktir fyrir leiðinlega hægagangs-rofa

já .. en hann er mjög fínn í hægagangi en svo stíg ég hægt og rólega á gjöfina og þegar hann kemur upp í þessa snúninga þá kokar hann. En ef ég held áfram að stíga á gjöfina þá fer hann í gegnum þetta leiðindar snúningssvið og vinnur eðlilega en eyðslumælirinn heldur áfram að vera í algjöru rugli s.s sýnir alls ekki eðlilega eyðslu.

Hemmi verkstjóri var búinn að benda mér á að tékka slöngurnar hjá ICV. Held að það sé næsta skref að tékka þennann rofa eins og þú nefnir.

Author:  GunniT [ Sun 29. Sep 2013 19:56 ]
Post subject:  Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff

tékka allt vacum og kíkja niður í kertagötin. gætu verið full af olíu eða bleytu.

Author:  Bandit79 [ Sun 29. Sep 2013 20:18 ]
Post subject:  Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff

GunniT wrote:
tékka allt vacum og kíkja niður í kertagötin. gætu verið full af olíu eða bleytu.

Er nýbúinn að skipta um ventlalokspakkningu.. hin var alveg búin og 3 kertagangar voru fullir af olíu. En það er allt komið í lag núna.
Skoða þetta samt snögglega ásamt vacuum slöngunum.

Author:  Mazi! [ Mon 30. Sep 2013 13:00 ]
Post subject:  Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff

Finnst þessar felgur merkilega töff,

til hamingju með bílinn annas, verður gaman að fylgjast með þessu verkefni :)

Author:  maxel [ Mon 30. Sep 2013 16:05 ]
Post subject:  Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff

Bandit79 wrote:
Alpina wrote:
M50 er víst tiltölulega þekktir fyrir leiðinlega hægagangs-rofa

já .. en hann er mjög fínn í hægagangi en svo stíg ég hægt og rólega á gjöfina og þegar hann kemur upp í þessa snúninga þá kokar hann. En ef ég held áfram að stíga á gjöfina þá fer hann í gegnum þetta leiðindar snúningssvið og vinnur eðlilega en eyðslumælirinn heldur áfram að vera í algjöru rugli s.s sýnir alls ekki eðlilega eyðslu.

Hemmi verkstjóri var búinn að benda mér á að tékka slöngurnar hjá ICV. Held að það sé næsta skref að tékka þennann rofa eins og þú nefnir.

ICV er hægagangsrofinn gamli

Author:  Bandit79 [ Mon 30. Sep 2013 16:53 ]
Post subject:  Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff

maxel wrote:

Það veit ég vel :) Kannski verið að misskilja smá.. meinti að ég ætla að kíkja á vacuum slöngurnar og rofann sjálfann. Kom pínu vitlaust frá mér :alien:

Author:  Danni [ Mon 30. Sep 2013 19:23 ]
Post subject:  Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff

Það lagast öll vandamál við BSK swap!

Author:  Angelic0- [ Mon 30. Sep 2013 19:24 ]
Post subject:  Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff

Danni wrote:
Það lagast öll vandamál við BSK swap!

word... áttu gírkassa í E38 bílinn minn :?:

Author:  Danni [ Mon 30. Sep 2013 20:07 ]
Post subject:  Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff

Angelic0- wrote:
Danni wrote:
Það lagast öll vandamál við BSK swap!

word... áttu gírkassa í E38 bílinn minn :?:

Já, en ég er að nota hann :mrgreen:

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/