bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

E32 750iL 92' Macaoblau - Kaffivélin
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=56120
Page 1 of 28

Author:  sosupabbi [ Sun 15. Apr 2012 03:37 ]
Post subject:  E32 750iL 92' Macaoblau - Kaffivélin

Var að fá þennan fína og svotil ryðlausa 750iL hjá honum Danna, gífurlega heill og HLAÐINN aukabúnaði

Rafmagn í öllum sætum
Tvöfaldar rúður
Hiti og bakstuðningur í framsætum
Rafmagn í öllum rúðum
Sjálf dimmandi speglar
Rafmagns afturgardína og manual hliðagardínur
BMW GSM
Forhitari með sér rafgeymir í skottinu
S/K Fjöðrun með lækkun
Buffaló leður(miðjustokkur og hurðaspjöld líka)
HiFi Harman hljóðkerfi
Individual litur(Macaoblau)
Orginal Shadowline
Cruise Control

Alveg gjörsamlega að drukkna í aukabúnaði þessi bíll og þar af leiðandi nóg af dóti til að bila :lol:

Planið með þennan er nú frekar hógvært en hann fékk endurskoðun útá spindilkúlu, þokuljós og stefnuljós, búið að fá varahluti í það svo hann fær 13 miða í vikunni :thup: , svo verður hann tekinn af númerum og skveraður fyrir sumarið.
Tók hann í dag og djúphreinsaði og bar vel af feiti á leðrið og þreif hann lauslega en hann fer í mössun og bón á miðvikudaginn.
Felgubúnaður er nú ekki merkilegur en það stendur til að bæta úr því en ég fæ undir hann sett af annaðhvort rondell 58 eða bjahja felgum.
Svo þarf að tengja útvarpið í hann, laga rafmagnið fyrir farþega sætið, rafmagnið í afturrúðu farþega megin og svo er eitthvað bölvað skröllt í honum sem eltir snúninginn á vélinni(vonandi bara laust púst hlíf eða eitthvað álíka) ofl smá dútl.

Er ekki búinn að taka neinar myndir af honum enda bara ný búinn að fá hann í hendurnar en ég fann hérna gamlar myndir úr söluauglýsingu sem mig langar að nota í leyfisleysi(skal fjarlæga ef eigandi vill ekki hafa þær hérna)
Image
Image
Image
Það eru kominn splunku ný Chrome nýru framan á bílinn svo það er kominn smá contrast í framendan á honum.

Author:  Geir-H [ Sun 15. Apr 2012 03:55 ]
Post subject:  Re: E32 750iL 92' Macaoblau

Bara flottur, skoðaði hann þegar að hann var auglýstur með þessum myndum.

Author:  Fatandre [ Sun 15. Apr 2012 09:47 ]
Post subject:  Re: E32 750iL 92' Macaoblau

Flottasti litur sem hægt er að fá á BMW :D

Author:  Helli [ Sun 15. Apr 2012 13:33 ]
Post subject:  Re: E32 750iL 92' Macaoblau

Gamli bílinn minn . Til hamingju með bilinn , gaman væri að sjá nýjar myndir af honum .

Author:  hrabbi123 [ Sun 15. Apr 2012 20:55 ]
Post subject:  Re: E32 750iL 92' Macaoblau

Sammála fyrri ræðumanni, væri gaman að sjá mynd af honum í dag á hinum felgunum.. en innilega til hamingju með gullfallegan bíl Markús og farðu að koma þér austur svo maður fái að skoðann :lol: ! kv Hrafn Sig

Author:  BMW_Owner [ Sun 15. Apr 2012 21:23 ]
Post subject:  Re: E32 750iL 92' Macaoblau

velkominn í IL crewið 8)

Author:  sh4rk [ Sun 15. Apr 2012 21:28 ]
Post subject:  Re: E32 750iL 92' Macaoblau

Virkilega flottur en ég vona að það sé búið að taka þetta angel eyes úr bílnum

Author:  sosupabbi [ Sun 15. Apr 2012 23:02 ]
Post subject:  Re: E32 750iL 92' Macaoblau

sh4rk wrote:
Virkilega flottur en ég vona að það sé búið að taka þetta angel eyes úr bílnum

Þakka fyrir, en angel eye ljósin verða áfram í bílnum og víkja ekki nema að ég finni hella dark sett, en það er mjög aftarlega á to-do listanum, almennt finnst mér angel eyes fara E34/E32/E30 mjög illa en þessi einhvernveginn kemst upp með það, kem með nýjar myndir af honum þegar ég er farinn að gera eitthvað að viti við hann :thup:

Author:  saemi [ Sun 15. Apr 2012 23:45 ]
Post subject:  Re: E32 750iL 92' Macaoblau

Lítur einkar smekklega út.

Sammála með ljósin, þau sleppa miðað við hvernig þetta kemur út á myndinni. Yfirleitt er þetta forljótt, en á myndinni gengur þetta næstum upp :P

Author:  Danni [ Mon 16. Apr 2012 11:23 ]
Post subject:  Re: E32 750iL 92' Macaoblau

Image

Þetta gengur alveg upp á þessum! Verð að viðurkenna að ég er ekki mikill fan af svona á þessum body-um. En það er samt eitthvað svo cool að sjá þetta á þessum bíl.

Ég hlakka til að sjá hvað þú gerir við hann, þessi bíll á mjög mikið inni! Einstaklega gott eintak sem þarf ekki mikið til að verða einn af, ef ekki sá flottasti E32 hérna á skerinu!

Author:  -Hjalti- [ Mon 16. Apr 2012 11:40 ]
Post subject:  Re: E32 750iL 92' Macaoblau

flottur Markús 8)

Author:  Sarot [ Tue 17. Apr 2012 02:25 ]
Post subject:  Re: E32 750iL 92' Macaoblau

Nice. Gaman að sjá að þú hafir ekki gefist upp á E32 :P

Author:  sosupabbi [ Tue 17. Apr 2012 21:31 ]
Post subject:  Re: E32 750iL 92' Macaoblau

Jæja, þá er það staðfest, þessi fær smur á mótor og drifi á morgun, ásamt mössun og bóni og vonandi smá auka dútli(laga útvarp og þess háttar ef tími gefst) og WOKKE tölvukubbar, sem eiga að gefa samkvæmt Wokke að gefa auka 37hp og 80nm! og ég get staðfest að þeir muna helling þessir þar sem ég setti þá í HAMAR á sínum tíma :thup: , svo verður kíkt austur í landeyjar á fimtudaginn og náð í sett af Rondell 58 hjá kristjáni 535 8)

Author:  Benzari [ Wed 18. Apr 2012 00:49 ]
Post subject:  Re: E32 750iL 92' Macaoblau

sosupabbi wrote:
Það eru kominn splunku ný Chrome nýru framan á bílinn svo það er kominn smá contrast í framendan á honum.


:thup: :thup: :thup: :thup: :thup:
miklu flottara 8)

Author:  Geir-H [ Wed 18. Apr 2012 11:09 ]
Post subject:  Re: E32 750iL 92' Macaoblau

Ætlaru ekki að fara að setja inn nýjar myndir af honum?

Page 1 of 28 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/