Page 1 of 1

BMW E38 730iA '94 - Winterbeaterinn

PostPosted: Fri 25. Nov 2011 13:38
by Danni
Jæja fyrst að veturinn er kominn með alvöru núna þá gekk ekki annað upp en finna góðan winterbeater svo að 540 þarf ekki að vaða um á söltuðum vegum.

Það var einn E38 búinn að vera óhreifður í götunni hjá foreldrum mínum í meira en ár og ég vissi að eigendurnir voru fluttir úr götunni. Síðan þegar lögreglan klippti af honum plöturnar vegna skoðunar þá þá hafði ég samband við eigandann og spurðist fyrir um bílinn og endaði með að kaupa hann.

Það sem var að eru varpaðir bremsudiskar að framan, demparafóðring vinstra megin að framan, fremri spindillinn hægra megin og slitinn sjálfskiptibarki. Annað afturbrettið og skottlokið eru líka farin að verða dáldið ryðguð.

Ég er búinn að skipta um barkann og setja hann á númer aftur og fékk þennan fallega græna 12 miða og er þá búinn að leggja inn númerin af 540 og setja hann innst inn í skúr.

Er alveg að fíla þennan bíl sem winterbeater, bara góðir bílar!

Fæðingarvottorð og myndir:

Vehicle information


Type code GF21

Type 730I (EUR)

Dev. series E38 ()

Line 7

Body type LIM

Steering LL

Door count 4

Engine M60/1

Cubical capacity 3.00

Power 160

Transmision HECK

Gearbox AUT

Colour COSMOSSCHWARZ METALLIC (303)

Upholstery STOFF VELOURS/GRAU (B7TT)

Prod. date 1994-09-01


Order options
No. Description
292 LT/ALY WHEELSL/CROSS-SPOKE STYLING

320 MODEL DESIGNATION, DELETION

423 FLOOR MATS, VELOUR

428 WARNING TRIANGLE

438 WOOD TRIM

456 COMFORT SEATS, ELECTRIC. ADJUSTABLE

510 HEADLIGHT BEAM-THROW CONTR. F LOW BEAM

534 AUTOMATIC AIR CONDITIONING

629 CAR TELEPHONE (GSM) W CARD READER FRONT

801 GERMANY VERSION

Image
Image
Image
Image
Image
Image

Re: BMW E38 730iA '94 - Winterbeaterinn

PostPosted: Fri 25. Nov 2011 13:41
by IngóJP
Eðal winterbeater þú átt eftir að gera þennan góðann :thup:

Re: BMW E38 730iA '94 - Winterbeaterinn

PostPosted: Fri 25. Nov 2011 13:48
by ValliFudd
Lofar góðu, fyndið samt að E38 sé orðinn winterbeater :lol:

Re: BMW E38 730iA '94 - Winterbeaterinn

PostPosted: Fri 25. Nov 2011 14:15
by Danni
ValliFudd wrote:Lofar góðu, fyndið samt að E38 sé orðinn winterbeater :lol:


Haha, já, sérstaklega þegar það er E34 sem er summerbeater :P En það munar ekki svo miklu á þeim, E34 er 05/1993 og E38 er 09/1994. Tæplega 1 og hálft ár.

Re: BMW E38 730iA '94 - Winterbeaterinn

PostPosted: Sat 26. Nov 2011 03:19
by Mazi!
Þú gerir þennann góðann :thup:

Re: BMW E38 730iA '94 - Winterbeaterinn

PostPosted: Sat 26. Nov 2011 14:50
by Logi
ValliFudd wrote:Lofar góðu, fyndið samt að E38 sé orðinn winterbeater :lol:

Það hefur nú tíðkast um áraraðir hérna á kraftinum að nota E38 sem winterbeaters :wink: Sæmi var fyrstur árið 2003 :lol: :
http://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=2794&hilit=740i

Re: BMW E38 730iA '94 - Winterbeaterinn

PostPosted: Sat 26. Nov 2011 18:51
by Einarsss
Þetta er alveg með veglegri vetrarbarningunum á kraftinum :D

Re: BMW E38 730iA '94 - Winterbeaterinn

PostPosted: Mon 28. Nov 2011 09:20
by Danni
Jæja. Núna er ég búinn að nota þennan bíl í 5 daga og er alltaf að verða meira og meira hrifinn af honum! Upprunalega planið var að kaupa, laga, nota í vetur og selja en núna er ég ekkert svo viss um að ég vilji selja hann, að minnsta kosti ekki fyrr en ég þarf meira á peningunum að halda en akkurat núna.

Ég fór í það í gær að losna við öll villuboð úr mælaborðinu, en það kom listi með bilunum í nánast öllum ljósum að aftan. Í nokkrum tilfellum var nóg að skipta um perur en sumstaðar þurfti meira til. Í númeraplötuljósinu t.d. þurfti ég taka það úr og pússa snertifletina þar sem það var komin svo mikil spansgræna að það kom ekki ljós á peruna. Í afturljósunum voru nokkur ónýt perustæði eftir að það hafa verið settar of sterkar perur, P21W í staðinn fyrir P5W. Perustæðin bráðnuðu bara. Þannig það var lítið annað í stöðuna en að bruna í bæinn og kaupa önnur afturljós þar sem það fylgdu perustæði með þeim :D

Ég tók síðan nokkrar myndir í snjónum. Langaði til að taka myndir í myrkri aftur þar sem ég hef ekki gert það í langan tíma. Orðinn svoldið ryðgaður á þetta tæki.

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Síðan er, eins og ég tók fram í fyrsta póstinum, komið frekar ljótt ryð á skottinu og hægra afturbrettinu. Ég ætla mér að ráðast í það að gera við þetta sjálfur til þess að prófa, en mig hefur alltaf langað til að prófa að sprauta almennilega með öðrum tækjum en spreybrúsum. Ég fer að sanka að mér réttum verkfærum í þetta og fræða mig um það hvernig er best að gera þetta allt saman. Ætla að reyna að gera þetta almennilega, ekkert fúsk. Ég ætla að byrja á skottinu þar sem það er minni flötur og ódýrara að láta laga ef ég klúðra þessu algjörlega :lol:

En hérna er hægt að sjá ryðið:
Image

Image

Síðan fara að koma í hann allir spindlar að framan og ný demparafóðring svo það er nú hægt að fara að keyra um á þessum eðalvagni án þess að það skröltir í þessu eins og í gömlum traktor!

Re: BMW E38 730iA '94 - Winterbeaterinn

PostPosted: Mon 28. Nov 2011 10:29
by lacoste
:thup: ekki slæmur beater

Re: BMW E38 730iA '94 - Winterbeaterinn

PostPosted: Mon 28. Nov 2011 11:04
by bErio
Haha flottur "12" miði

Re: BMW E38 730iA '94 - Winterbeaterinn

PostPosted: Mon 28. Nov 2011 13:17
by Danni
bErio wrote:Haha flottur "12" miði


:D Það var markmiðið að fara í skoðun og koma út með 12 miða, gat ekki klúðrað því nema með að fá akstursbann :lol:

Re: BMW E38 730iA '94 - Winterbeaterinn

PostPosted: Mon 28. Nov 2011 14:14
by íbbi_
reynsluók þessum fyrir orðið ANSI mörgum árum þegar þetta var ennþá ansi dýrt, þeir voru tveir alveg eins hérna, þ.e.a.s sama lita combo

geggjaður wb :thup:

Re: BMW E38 730iA '94 - Winterbeaterinn

PostPosted: Thu 01. Dec 2011 20:36
by cooler
Èg bar tennan augum i dag, virkilega smekklegur bíll og verdur eflaust bara fallegri í höndunum á Danna.
Flottar snjómyndirnar, eitthvad snjallt med svarta bíla í snjó.

Re: BMW E38 730iA '94 - Winterbeaterinn

PostPosted: Fri 02. Dec 2011 00:15
by Subbi
Verður fallegur Danni hjá þér þessi :)

Þurfum svo að smala e38 og e39 bílunum okkar hér suðurfrá í Myndatöku nú eru græjurnar komnar aftur og ekki slæm e38 og e39 eintökin hjá okkur hér á suðurnesjunum :lol:

Flottur bíll Danni þú gerir hann flottan