Page 1 of 5

BMW E39 540ia - SS200

PostPosted: Sun 06. Nov 2011 20:18
by rockstone
Sælir,

Verslaði mér þennan eftir að ég seldi e36 projectið.

Margir vita hvaða bíll þetta er, en þetta er 1996 árgerð, einungis ekinn 153.xxx KM, og frekar vel með farinn.
Hann er með M62B44 Non-Vanos vélinni. Og skilar rúmum 286 hestöflum orginal.
Liturinn heitir Fjordgrau Metallic, finnst þetta mjög flottur litur.
Skiptingin er 5 gíra og með S/M valmöguleika.
Hiti í sætum, stýri og afturrúðu.
Ég fékk hann á 18"x8" Style 32 felgum, á alveg sléttum dekkjum, en setti á hann 16" felgur á vetrardekkjum sem fylgdu með. Og seldi style 32.
Það var búið að setja á hann ///M framstuðara en enga kastara, það fylgdu tveir kastarar með en þeir eru af sitthvorri tegundinni, þannig þeir fara ekki á.


Ýmislegt sem þarf að dunda sér við, en ýmislegt sem ég er búinn að gera.

Það sem ég er búinn að gera:
Skipta um viftureim og AC reim. Keyptar í B&L.
Skipti um ballansstangarenda v/m að aftan, keyptann í TB.
Skipti um fremri, efri spyrnu að aftan v/m, keypt í TB.
Skipti um aftari fóðringar í fremri spyrnum b/m, keypt í TB.
Liðkaði upp á bremsunum hringinn.

Það sem þarf/þyrfti að gera:
Finna útúr ABS vandamáli, þegar maður hemlar undir ca. 40km hraða þá kemur abs titringur í Pedalann. Kemur fyrir að ABS ljósið komi á Og spólvörnin fari af.
Sprungur í báðum afturljósum, ekki brotin, en þetta er ljótt.
Vantar kastara í ///M framstuðarann, og kastarahlífar.
Húdd og skott BMW merkin orðin ílla farin, þyrfti að skipta.
Skipta um nýru, annað nýra er orðið smá laust.
Vantar einn tjakkpúða undir hann.
Spegilglerið bílstjóramegin er rautt og það er gult farþegamegin, veit ekki hvað er málið með það, en myndi vilja skipta.
Titrar smá við hemlun, væntanlega pínu skakkir diskar.


Annars er þetta mjög góður bíll, vel með farinn og er ekki búinn að taka eftir neinu riði.

Veit ekki með plön... en þið megið endilega láta mig vita ef þið vitið um einhvað sniðugt fyrir þennan bíl. Komment og hugmyndir velkomnar ;)

Myndir:

Fékk hann svona:
Image
Image

Fór síðan og skellti vetrardekkjunum undir, þreif og bónaði. Fékk síðan Andra (ANDRIM) til að smella myndum af honum:
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image

Takk fyrir mig.

Re: BMW E39 540ia - SS200

PostPosted: Sun 06. Nov 2011 20:39
by Ívarbj
Þetta er mjög eigulegur 540

Þetta ABS vesen, tengist öruglega heilanum, þarft að senda hann út í viðgerð eða skipa um hann (láttu samt fagmann staðfesta það) ;)

Spegilglerin eru óþolandi, kemur raki milli spegilsins og filmunar. Þekkt vandamál.

Re: BMW E39 540ia - SS200

PostPosted: Sun 06. Nov 2011 21:07
by Einarsss
Já tek undir að þetta er líklegast heilinn, er að fara senda abs moduleið úr mínum út til þessa gaura http://www.modulemaster.com í vikunni, kostar 350$ með sendingarkostnaði heim.

Bara passa að fylla út form frá tollstjóranum um að þú sért að senda út part í viðgerð svo þú þurfir ekki að borga toll+vsk þegar þetta er sent til baka ;)

Re: BMW E39 540ia - SS200

PostPosted: Sun 06. Nov 2011 21:10
by kalli*
Damn, vissi ekki að þetta væri heilinn. :shock: Óendanlega skemmtilegur bíll. :thup:

Re: BMW E39 540ia - SS200

PostPosted: Sun 06. Nov 2011 21:10
by Einarsss

Re: BMW E39 540ia - SS200

PostPosted: Sun 06. Nov 2011 21:52
by slapi
Það er víst einn á flæðiskerinu sem getur lagað module-ið.

Re: BMW E39 540ia - SS200

PostPosted: Sun 06. Nov 2011 22:08
by Einarsss
info?

Re: BMW E39 540ia - SS200

PostPosted: Sun 06. Nov 2011 22:42
by rockstone
slapi wrote:Það er víst einn á flæðiskerinu sem getur lagað module-ið.


Hver mun það vera? :)

Re: BMW E39 540ia - SS200

PostPosted: Sun 06. Nov 2011 22:51
by Vlad
Bídduuuu varstu ekki að selja hinn til að fara í nám erlendis?

:hmm:

En annars þú veist, flottur bíll.

Re: BMW E39 540ia - SS200

PostPosted: Sun 06. Nov 2011 22:55
by rockstone
Vlad wrote:Bídduuuu varstu ekki að selja hinn til að fara í nám erlendis?

:hmm:

En annars þú veist, flottur bíll.


Fer eftir nokkur ár, vildi bara ekki vera með project, sem er fast inní skúr í einhvern tíma og fer helling af pening í. Get verið á þessum allt árið.

en vill nú ekki vera að ræða það í þessum þráð takk fyrir.

Re: BMW E39 540ia - SS200

PostPosted: Sun 06. Nov 2011 23:10
by iar
Til lukku!

Merkilegt hvað non-facelift ljósin sleppa vel á þessum.. yfirleitt finnst mér það vera nr. 1 útlitsatriði á E39 að setja facelift ljós en þessi koma bara vel út. Það er líklega grái liturinn á bílnum..

Re: BMW E39 540ia - SS200

PostPosted: Sun 06. Nov 2011 23:26
by SteiniDJ
Þessi bíll er ótrúlega þéttur og góður, þvílíkt skemmtilegur í akstri. Farðu vel með hann og njóttu! :)

Skemmtilegar breytingar væri að fara yfir í facelift (ef það heillar þig), M-tech að aftan (og hugsanlega léttar pústbreytingar? :mrgreen:), laga lip spoilerinn og flott DICE/annað iPod interface. Eitt það skemmtilegasta við þennan bíl er imo hljóðkerfið sem er lygilega gott.

Re: BMW E39 540ia - SS200

PostPosted: Sun 06. Nov 2011 23:29
by rockstone
SteiniDJ wrote:Þessi bíll er ótrúlega þéttur og góður, þvílíkt skemmtilegur í akstri. Farðu vel með hann og njóttu! :)

Skemmtilegar breytingar væri að fara yfir í facelift (ef það heillar þig), M-tech að aftan (og hugsanlega léttar pústbreytingar? :mrgreen:), laga lip spoilerinn og flott DICE/annað iPod interface. Eitt það skemmtilegasta við þennan bíl er imo hljóðkerfið sem er lygilega gott.


Bara spurning með pústbreytingu ef M afturstuðari væri keyptur, vill ekki fá alltof mikinn hávaða.....

Kannski finna Vinstri kút af OEM M5 Pústi?

Re: BMW E39 540ia - SS200

PostPosted: Mon 07. Nov 2011 00:40
by Ívarbj
Getur líka tekið Y-resonatorinn úr.


Re: BMW E39 540ia - SS200

PostPosted: Mon 07. Nov 2011 00:56
by íbbi_
haha var einmitt að hlæja af því að þú værir strax kominn með annan bíl eftir að hafa selt hinn vegna þess að þú værir að plana nám,

en að því undanskyldu erum við að ræða um gríðaega fallegan bíl sem þú ert með, og stráheilan ef hann er eins og hann var,

þú þarft ekki a breyta pústinu ef þú ferð í Mtech stuðara, þeir eru bara með púst öðru meginn,