bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
E38 750ia Bókhaldið https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=49720 |
Page 1 of 5 |
Author: | Einsii [ Thu 24. Feb 2011 10:16 ] |
Post subject: | E38 750ia Bókhaldið |
Eignaðist í gær grænann bíl, grænni bíl en flestir príusar reyndar.. Ég ímynda mér að flestir hér kannist við hann, enda aksturinn einn og sér er eitthvað sem menn taka eftir ![]() Bíllinn hefur fengið alveg ótrúlegt viðhald hjá síðasta eiganda og "Bloggað" um allt saman á blýfæti. Ég hef sennilega aldrei lagt á mig eins mikla ransóknarvinnu við kaup á bíl einsog þessum.. Ég er búinn að tala við öll stóru nöfnin í bransanum og þá sem sáu um allt viðhald á honum síðustu ár hér á Akureyri. Allir voru sammála að þrátt fyrir pirrandi mikinn akstur þá sé bíllinn í topplagi þar sem það skiptir máli, mótor, skipting, bremsur, allir hlutir að innan og utan virka og það er bara ekkert svona, "Þetta ljós kom í gær" eða "þetta hefur bara aldrei virkað" Semsagt góður bíll sem keyrir æðislega og ekkert skrölt. En hann er reyndar ekki fullkominn, útlislega séð er honum best lýst sem sjúskuðum, Lakkið er frekar slæmt á sumum stöðum og ég þarf að ganga frá hlutum einsog hurðarspjöldum og þannig inni í honum og listum ofl. að utan. Samt hlutir sem ég get dundað í sjálfur og geta ekki verið dýrir eða erfiðir. Þetta er einsog gefur að skilja bíll sem ég hugsa mér að eiga eitthvað, því ég fór að sjálfsögðu út í þetta vitandi að "gamall" V12 keyrður hátt í 300k selst ekkert á fyrsta degi hversu góður sem bíllinn er ![]() En allavega, ég er rétt búinn að keyra bílinn heim frá því ég eignaðist hann og mun kanski seigja meira frá honum eftir fyrsta bón. Fyrir þá sem ekki hafa kveikt á því hvaða bíll þetta er læt ég með mynd frá fyrri eiganda. Og já ég ætla mér að halda áfram með rekstrar bókhaldið um bílinn og jafnvel pósta öllu saman á netið. ![]() ![]() ![]() En ég held svona heilt yfir að þá hafi ruglið tekist nokkuð vel hjá mér í þetta skiptið. ![]() |
Author: | -Hjalti- [ Thu 24. Feb 2011 10:24 ] |
Post subject: | Re: Stundum kemur ruglið í mér jafnvel sjálfum mér á óvart.. |
Flott mál að það eignaðist hann eitthver með viti ![]() |
Author: | tomeh [ Thu 24. Feb 2011 16:59 ] |
Post subject: | Re: Stundum kemur ruglið í mér jafnvel sjálfum mér á óvart.. |
Einsii wrote: Þetta er einsog gefur að skilja bíll sem ég hugsa mér að eiga eitthvað, því ég fór að sjálfsögðu út í þetta vitandi að "gamall" V12 keyrður hátt í 300k selst ekkert á fyrsta degi hversu góður sem bíllinn er ![]() Hvaða árgerð er hann? Hvaða litur er þetta á honum? ![]() |
Author: | Einsii [ Thu 24. Feb 2011 17:51 ] |
Post subject: | Re: Stundum kemur ruglið í mér jafnvel sjálfum mér á óvart.. |
tomeh wrote: Einsii wrote: Þetta er einsog gefur að skilja bíll sem ég hugsa mér að eiga eitthvað, því ég fór að sjálfsögðu út í þetta vitandi að "gamall" V12 keyrður hátt í 300k selst ekkert á fyrsta degi hversu góður sem bíllinn er ![]() Hvaða árgerð er hann? Hvaða litur er þetta á honum? ![]() Hér kemur þetta bara í heild sinni, mikið af merkilegum búnaði þarna Vehicle information VIN long WBAGG21080DG25808 Type code GG21 Type 750I (EUR) Dev. series E38 () Line 7 Body type LIM Steering LL Door count 4 Engine M73 Cubical capacity 5.40 Power 240 Transmision HECK Gearbox AUT Colour OXFORDGRUEN METALLIC (324) Upholstery STANDARDLEDER/ENGLISCHGRUEN (N8EG) Prod. date 1997-10-30 Order options No. Description 235 TRAILER-HITCH WITH REMOVABLE HEAD 261 SIDE AIRBAG FOR REAR PASSENGERS 401 SLIDING/VENT ROOF, ELECTRIC 416 SUNBLINDS 423 FLOOR MATS, VELOUR 428 WARNING TRIANGLE 430 INT/EXT RR VW MIRROR W AUT ANTI-DAZZLE 441 SMOKERS PACKAGE 494 SEAT HEATING F DRIVER/FRONT PASSENGER 496 SEAT HEATING FOR REAR SEATS 522 XENON LIGHT 622 SEC.HANDSET IN RR COMPARTMENT F PHONE 629 CAR TELEPHONE (GSM) W CARD READER FRONT 761 INDIVIDUAL SUN PROTECTION GLAZING 801 GERMANY VERSION 863 EUROPE/DEALER DIRECTORY 879 GERMAN/OWNERS HANDBOOK/SERVICE BOOKLET 915 BODY SKIN CONSERVATION, DELETION Series options No. Description 202 STEPTRONIC 214 AUTOMATIC STABILITY CONTROL+TRACTION 216 SERVOTRONIC 220 SELF-LEVELING SUSPENSION 245 STEERING COLUMN ADJUSTMENT ELEC 260 SIDE AIRBAG DRIVER/FRT PASSENGER 262 HEAD AIRBAG 295 LT/ALY WHEELS/STAR SPOKE 96 302 ALARM SYSTEM 438 WOOD TRIM 456 COMFORT SEATS, ELECTRIC. ADJUSTABLE 473 ARMREST, FRONT 500 HEADLIGHT WASHER SYS/INTENSIVE CLEANING 534 AUTOMATIC AIR CONDITIONING 548 SPEEDOMETER WITH KILOMETER READING 555 ON-BOARD COMPUTER 806 3RD STOP LIGHT Information No. Description 415 SUNBLIND FOR REAR WINDOW 431 INTERIOR RR VW MIRROR W AUT ANTI-D |
Author: | Danni [ Thu 24. Feb 2011 18:24 ] |
Post subject: | Re: Stundum kemur ruglið í mér jafnvel sjálfum mér á óvart.. |
Mér finnst þessi bara flottur! Sé ég ekki rétt að hann er full leðraður að innan? |
Author: | Fatandre [ Thu 24. Feb 2011 18:27 ] |
Post subject: | Re: Stundum kemur ruglið í mér jafnvel sjálfum mér á óvart.. |
Topp bíll og votta að felgurnar eru helvíti skemmtilegar ![]() ![]() |
Author: | tomeh [ Thu 24. Feb 2011 19:12 ] |
Post subject: | Re: Stundum kemur ruglið í mér jafnvel sjálfum mér á óvart.. |
Nice, hélt einmitt að þetta væri Oxfordgreen sem er baara flott! |
Author: | -Hjalti- [ Thu 24. Feb 2011 19:27 ] |
Post subject: | Re: Stundum kemur ruglið í mér jafnvel sjálfum mér á óvart.. |
Danni wrote: Mér finnst þessi bara flottur! Sé ég ekki rétt að hann er full leðraður að innan? eins og allir E38 750 |
Author: | Kristjan [ Thu 24. Feb 2011 19:56 ] |
Post subject: | Re: Stundum kemur ruglið í mér jafnvel sjálfum mér á óvart.. |
Þetta er glæsilegur bíll og á bara eftir að verða betri í þinni eigu. |
Author: | iar [ Thu 24. Feb 2011 20:16 ] |
Post subject: | Re: Stundum kemur ruglið í mér jafnvel sjálfum mér á óvart.. |
Til hamingju með þennan. Hef aðeins fengið að prófa og sitja í þessum. ![]() Einsii wrote: Ég hef sennilega aldrei lagt á mig eins mikla ransóknarvinnu við kaup á bíl einsog þessum.. Ég er búinn að tala við öll stóru nöfnin í bransanum og þá sem sáu um allt viðhald á honum síðustu ár hér á Akureyri. Allir voru sammála að þrátt fyrir pirrandi mikinn akstur þá sé bíllinn í topplagi þar sem það skiptir máli, mótor, skipting, bremsur, allir hlutir að innan og utan virka og það er bara ekkert svona, "Þetta ljós kom í gær" eða "þetta hefur bara aldrei virkað" Semsagt góður bíll sem keyrir æðislega og ekkert skrölt. Þetta er akkúrat málið! Maður fær það stundum á tilfinninguna að fólk vilji frekar kaupa þreyttan bíl sem er búið að skrúfa niður úr 300þ. í 150þ. frekar en vel viðhaldið bíll sem er ekinn jafn mikið en ekki skrúfaður niður. ![]() |
Author: | Orri Þorkell [ Fri 25. Feb 2011 17:46 ] |
Post subject: | Re: Stundum kemur ruglið í mér jafnvel sjálfum mér á óvart.. |
Flottur þessi. hvaða búnaður er þetta samt 245 STEERING COLUMN ADJUSTMENT ELEC ? |
Author: | Einsii [ Fri 25. Feb 2011 17:49 ] |
Post subject: | Re: Stundum kemur ruglið í mér jafnvel sjálfum mér á óvart.. |
Orri Þorkell wrote: Flottur þessi. hvaða búnaður er þetta samt 245 STEERING COLUMN ADJUSTMENT ELEC ? Rafstýrð færsla á stíri. Tengt minninu fyrir sætin og fer meira að seigja frá þegar drepið er á bílnum svo það sé auðveldara að standa uppúr honum.. Mega þæginlegt ![]() |
Author: | trigger [ Fri 25. Feb 2011 22:41 ] |
Post subject: | Re: Stundum kemur ruglið í mér jafnvel sjálfum mér á óvart.. |
Það verður gaman að fylgjast með þessum bara batna með aldrinum, ánægjulegt að hann sé í góðum höndum! kv Tryggvi |
Author: | Einsii [ Sat 05. Mar 2011 12:09 ] |
Post subject: | Re: Stundum kemur ruglið í mér jafnvel sjálfum mér á óvart.. |
Ok, ég er búinn að bóna einusinni og þá mögulegt að ræða þennann aðeins. Það er farinn einn tankur af bensíni, hann fór á 17,3 lítrum á hundraðið þar inni er ein ferð til Dalvíkur sirka 80km og rest að mestu innanbæjar. Mér þykir það alls ekki svo slæmt miðað við að Terrano búð*****inn var að fara með hátt í það og jafnvel nokkuð meira suma mánuðina. Helsta vandamálið fyrir bensínkortið verður samt að ég keyri þennann bíl meira en jeppann þannig að bensínkostnaður mun alltaf hækka eitthvað. En hvað um það, bílinn er æðislegt að keyra og finnst mér einsog ég eigi að hafa svona Rolls Royce power reserve mæli í staðin fyrir snúningsmælinn, því manni líður ensog bíllinn eigi alltaf nóg inni undir húddinu. Þægindin eru algerlega til staðar fyrir alla í bílnum og breytingin frá Terrano er svona þegar ég fer að spá í því eiginlega ólýsanleg, allavega detta mér ekki réttu orðin í hug ![]() Ég er svo búinn að sjá að annar afturdemparinn lekur og hleðslujafnarinn er óvirkur (búið að aftengja stangirnar sem fylgjast með hæð bílsins og þessvegna gerir kerfið ekki neitt) Sem betur fer sýnist mér hann leka að neðan sem þíðir tveir o hringir en ekki að ofan sem mundi þíða demparinn FUBAR. Ég þarf bara að redda mér þessum hringjum í réttri stærð og úr rétta gúmmíinu til að redda þessu máli. Lakkið er enn vont og er ég aðeins búinn að sýna sprautara bílinn, sjáum svo bara til hvort hægt verði að réttlæta eitthvað stórt í því. Ég ætla svo að halda áfram með rekstarbloggið um mánaðarmót þó sennilega enginn hafi áhuga á þessum rekstri nema ég ![]() |
Author: | apollo [ Sat 05. Mar 2011 12:19 ] |
Post subject: | Re: Stundum kemur ruglið í mér jafnvel sjálfum mér á óvart.. |
mætti þér um daginn, lítur mjög smekklega út ![]() ![]() |
Page 1 of 5 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |