Langaði að setja inn bílinn minn sem ég keypti mér fyrir sumarið.
Um ræðir Bmw 523ia e39, 99 módel, ekin 189k, ssk, litur Biarritz blue kemur virkilega vel út, leðurklæddur í svörtu og með 12 miða.
Breytingar:
Fékk ég bílinn alveg original á ljótum pcw felgum, skítugan og óbónaðan í langan tíma.
Fyrsta sem ég gerði var að massa allan bílinn og ná lakkinu eins góðu og ég gat, sonax í styrk tvem virkaði mjöög vel. ( smá massi en ekki of mikill )
Filmur settar í af VIP, passaði mig á því að gera hann ekki of dökkann finnst smekklegra þegar þær eru aðeins ljósar.
En ég lét filma bílinn allan hringinn nema framrúðuna sjálfa. Styrkur frá öftustu til fremstu: 15-20-35
Felgur: Keypti felgur undan e60 bíl alveg eins og nýjar og ókantaðar, reyndar 16'' en kemur virkilega vel út á bílnum.
M5 boot trunk lip spoiler, keyptur að utan í oem lit bilsíns ( Biarritz Blue Met ).
svo segja myndir meira en allt. Endila gefa ykkar álit á eh sem má betur fara eða bæta við

Eins og ég fékk hann, nýmassður. (flestar myndirnar eru illa teknar en hann á eftir að fara í myndatöku)




Svo var bíllinn filmaður, heppnaðist mjög vel:



Svo var lipið sett á hann í fyrradag, Virkilega sáttur með það:

