Page 1 of 2

Bmw e36 325i - búinn að pimpa felgurnar

PostPosted: Sun 29. Aug 2010 18:06
by Skúli
Eignaðist þennan um helgina.

1994 árgerðin af 325 með m50b25 VANOS, 192 hp.

Þetta er Bmw nr.2 sem ég hef átt og ég var búinn að sakna hversu ljúft er að keyra þetta. Hann nýtur sín vel á hundraðinu og er afar þéttur og góður í keyrslu.

Hvítt leður, stóra aksturstölvan sem er reyndar ólæsileg, M3 fjöðrun, M3 speglar, M3 framstuðari sem þarf að gera aðeins við, glænýtt sérsmíðað púst ofl.

Það er opið drif í honum og nú má einhver sem á lsd eða soðið til sölu senda mér pm.

Fékk með honum 2 spólfelgur og 4 hvítar felgur sem ég ætla að sprauta uppá nýtt og þið megið koma með hugmyndir af lit? Hef verið að spá í að hafa miðjurnar svartar og bláan hring eða eitthvað álíka.

Bíllinn er sprautaður í flottum dökkbláum lit, lakkið er ekkert til að opna einn ískaldann yfir, smá ryð hér og þar en þó ekkert alvarlegt.

Ef einhver veit viðhaldslega sögu þessa bíls þá má hann endilega deila henni :thup: .

Þannig það fyrsta sem ég geri þegar ég eignast hann er að massa hann og sprauta netið í stuðaranum svart. Ég læt nokkrar myndir fylgja af afrakstrinum:

Byrjuðum með grófan massa og grófan púða

Image

Næst var farið í fínni púða

Image

Hér má sjá hvernig hann lýtur út eftir 2 umferðir af massa, ég á reyndar eftir að bóna hann alminnilega en hann verður dodo juicaður sem fyrst.

Image

Mun flottari með svarta netið :thup:

Image

Image

Plönin eru ekkert gríðarleg:

-Pússa niður hvítu felgurnar og hafa hugsanlega svartar með bláum hring eða eitthvað sniðugt
-Þrífa leður
-Setja í hann læst drif
-Þurrka burt þetta lakk sem er á afturljósunum og sprauta appelsínugula í stefnuljósunum svart
-Skipta um fóðringar í gírstöng
-Laga horn á framstuðara
-Afhausa mörg dekk

Re: Nýji bíllinn, Bmw e36 325i

PostPosted: Sun 29. Aug 2010 18:52
by Maddi..
Lagaði myndirnar fyrir þig.

Skúli wrote:Eignaðist þennan um helgina.

1994 árgerðin af 325 með m50b25, 192 hp.

PostPosted: Sun 29. Aug 2010 22:48
by Skúli
Já takk fyrir þetta, hvað gerði ég vitlaust eiginlega?

Re: Nýji bíllinn, Bmw e36 325i

PostPosted: Sun 29. Aug 2010 22:52
by Dóri-
ég átti þennan bíl einusinni og hann virkaði ágætlega bara böggandi gírkassinn í honum.

Re: Nýji bíllinn, Bmw e36 325i

PostPosted: Sun 29. Aug 2010 22:54
by Skúli
Dóri- wrote:ég átti þennan bíl einusinni og hann virkaði ágætlega bara böggandi gírkassinn í honum.

Það er ekkert að honum nema syncro í fyrsta gír, en þar sem þetta er fyrsti gír þá seturu oftast hvort sem er rólega í hann þannig það böggar mig ekki neitt.

Re: Nýji bíllinn, Bmw e36 325i

PostPosted: Sun 29. Aug 2010 22:58
by rockstone
Skúli wrote:Já takk fyrir þetta, hvað gerði ég vitlaust eiginlega?

það vantaði http:// fyrir framan myndalinkana

Re: Nýji bíllinn, Bmw e36 325i

PostPosted: Wed 01. Sep 2010 18:16
by Skúli
Getur einhver bent mér á læst drif í þennan bíl??

Re: Nýji bíllinn, Bmw e36 325i

PostPosted: Wed 01. Sep 2010 18:36
by SUBARUWRX
Skúli wrote:Getur einhver bent mér á læst drif í þennan bíl??

já hjolli herna á spjallinu..

Re: Nýji bíllinn, Bmw e36 325i

PostPosted: Wed 01. Sep 2010 23:47
by Axel Jóhann
Nei drifið sem hjölli á er fyrir 316-318 og 320 það passar ekki í þennan, þú þarft að auglýsa eftir drifi úr t.d. e34 eða e30 og þá þarf að taka læsinguna og færa yfir í þitt drif, ég get gert það fyrir þig, fyrir sanngjarna upphæð. 695-7205 Axel Jóhann

Re: Nýji bíllinn, Bmw e36 325i

PostPosted: Sat 04. Sep 2010 00:36
by Skúli
Jæja skoðaði bílinn á lyftu áðan og botninn í honum er merkilega heill og allar fóðringar og slíkt í lagi.

Annað sem ég fattaði er að það voru 2 hvarfar undir honum og þeir voru báðir stíflaðir í drasl. Strákarnir í kvikk voru ekki lengi að rífa þá úr. Komið allt annað hljóð í bílinn núna og virkar auk þess mun betur!

Re: Nýji bíllinn, Bmw e36 325i

PostPosted: Sun 05. Sep 2010 17:27
by SUBARUWRX
hvenar koma nyjar myndir af bilnum :)

Re: Nýji bíllinn, Bmw e36 325i

PostPosted: Mon 06. Sep 2010 12:26
by Skúli
SUBARUWRX wrote:hvenar koma nyjar myndir af bilnum :)

Þegar ég drullast til að gera eitthvað af viti í honum, t.d. græja dekk á hvítu felgurnar og sprauta þær uppá nýtt, gera við hornið á stuðaranum og svona

Re: Nýji bíllinn, Bmw e36 325i

PostPosted: Mon 27. Sep 2010 13:54
by Skúli
Gerðu smá breytingu á felgunum um helgina:

Image

Þetta kemur vel út í eigin persónu finnst mér 8)

Næst á dagskrá er að sprauta afturljósin og þá ætla ég að hafa stefnuljósið og bakkljósið svart og rest fyrir neðan rautt.

Svo á eftir því þá tek ég stefnuljósin að framan og dekki þau aðeins, þá fer þetta allt að smella saman.

Annars er ég ekki ennþá búinn að finna lsd í hann, veit einhver?

Re: Bmw e36 325i - búinn að pimpa felgurnar

PostPosted: Mon 27. Sep 2010 17:13
by einarivars
ahhhhh, mun lita betur út með meiri lækkun allavega

Re: Bmw e36 325i - búinn að pimpa felgurnar

PostPosted: Mon 27. Sep 2010 17:35
by F2
það er árið 2010