Þessi er búin að vera rúlla á götunni í sumar, eflaust einhverjir tekið eftir.
Er ekki enn búinn að senda kassann í uppgerð eða panta læsingu en ég setti í hana TechnoToyTuning lateral bar og
NCRCA's, lækkaði hana umtalsvert og hún er farin að verða ansi skemmtileg í akstri. Ég hef verið að keyra svolítið á akstursæfingum og kíkti norður á bíladaga á henni. Fór með 6.8 l/100km á leiðinni norður án þess að vera eitthvað að reyna spara, helvíti sáttur með það. Tók þátt í götumílunni, lenti á móti turbo Prelude og skíttapaði.
(Komst ekki í annan gír vegna ónýts synkro, en ég hefði aldrei unnið hvort eð er.) Hún rúllar bara nokkuð solid fyrir utan svolítinn olíuleka, sem er mér að kenna og er næst á dagskrá.
Hún mun lítið sjást meira í sumar, því ég er að fara út að vinna, en maður mætir á æfingar meðan maður er á landinu. Ekki hika við að banka í öxlina á mér ef þið viljið skoða.
...og já, ég steikti rafgeyminn minn, svo
mig vantar nýjan.