Page 1 of 3
BMW 325 is

Posted:
Thu 12. Dec 2002 19:31
by Gardar

Posted:
Thu 12. Dec 2002 23:03
by saemi
Veeeeeiiiii loksins ferskt blóð á síðuna...
Velkominn
Sæmi

Posted:
Fri 13. Dec 2002 10:47
by bebecar
Velkominn á svæðið Garðar....
Ein spurning, ekur þú um á nöglum fyrir norðan?

Posted:
Sat 14. Dec 2002 16:05
by Gardar
Já ég geri það, en það er bara af því að ég átti fín nagladekk, það er samt ekki búinn að vera eiginlega ninn snjór i vetur, ég get bara ekki sett 17" undir því að dekkin eru orðin ónýt.

Posted:
Tue 06. May 2003 21:11
by Gardar
loksins búinn að taka myndir af honum á sumarfelgunum og skipta gömlu myndunum út

Posted:
Tue 06. May 2003 21:18
by bjahja
Virkilega flottur bíll.
Flottar felgur


Posted:
Tue 06. May 2003 22:07
by hlynurst
bjahja wrote:Flottar felgur
Afhverju finnst þér það???
En ég er hinsvega alveg sammála þér. Þessar felgur fara E36 ótrúlega vel! Hinsvegar er ég að spá í hvað þetta S stendur fyrir í 325 i
s? Hef séð svona bíl oft í Grafarvoginum... veit að þetta á að þýða sport en hvað er inní í því? Stífari fjöðrun? Er bíllinn eitthvað gíraður öðruvísi eða er eitthvað annað spennandi innifalið?

Posted:
Wed 07. May 2003 02:14
by Halli
allir 318is er með tveggja knastása vél veit ekki með þennan
virkilega fallegur bíll til fallegar felgur

Posted:
Wed 07. May 2003 03:16
by Haffi
318is er twincam 4cyl 143hp .... hvað er þinn? er hann ekki bara með m52 eða m50 vélinni 6cyl?

Posted:
Wed 07. May 2003 03:25
by arnib
Nú er ég alls ekki pottþéttur, en mig minnir að is bílarnir komi með 25% LSD!

Posted:
Wed 07. May 2003 09:52
by gstuning
Ef bíllinn er alvöru is þá kemur hann með
beinskiptingu,
sportsætum
læsingu
topplúgu
leðri
og hinu dýrari dótinu
sport fjöðrun flottari felgur og eitthvað svoleiðis líka

Posted:
Wed 07. May 2003 10:40
by Gardar
bíllinn er með læsingu ég veit ekki hvort þetta séu einhver sér sportsæti. en haann er með leðri og topplúgu og beinskiptur

Posted:
Wed 07. May 2003 12:22
by Jói
Ég man reyndar eftir verðlista frá USA þegar BMW 318is e36 var seldur og þá var LSD ekki inn í Sport pakkanum en hægt var að fá það fyrir ca. 400-600 dollara. Einnig hef ég haldið að inn í þessum Sport pakka væri sportsæti, sem eru hálfleðruð, en sennilega er hægt að fá þau fullleðruð sem aukabúnað. En ég held að grunn 318i Sport e36 hafi ekki verið með læsingu sem staðalbúnað.

Posted:
Wed 07. May 2003 17:20
by Moni
318is kemur með eins og haffi segir twin cam vél og hann er líka 16 ventla, minn 318i er ekki twin cam og er bara 8 ventla... því miður
Svo eru þessir bílar auðvitað bara 2ja dyra...

Posted:
Wed 07. May 2003 18:39
by Moni
gstuning wrote:Ef bíllinn er alvöru is þá kemur hann með
beinskiptingu,
sportsætum
læsingu
topplúgu
leðri
og hinu dýrari dótinu
sport fjöðrun flottari felgur og eitthvað svoleiðis líka
Það eru reyndar ekki allir is bílar beinskiptir, það er einn sem er sjálfskiptur, það er BMW X5 4.6is, hann er 5 gíra sjálfskiptur...
