bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

E30 325i Kominn ú geymslu, nýjar myndir
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=41157
Page 1 of 9

Author:  Leví [ Fri 13. Nov 2009 18:14 ]
Post subject:  E30 325i Kominn ú geymslu, nýjar myndir

Jæja kominn tími til að setja inn þráð um þennan, ég keypti hann núna í lok sumars 2009 af Helgu/Ericu og er þessi bíll mjög vel með farinn í allastaði.
Þetta er semsagt Bmw e30 325i árgerð 1987.

Það sem ég er búinn að gera við hann er að skipta um mótorpúða, kerti, kominn nýr rafgeimir, laga pústið það var laust á einum stað og skrölti leiðinlega í því, fjöðrun allan hringinn,
komið nýtt lip á skottið gamla var farið að ryðga að inna og var farið að losna af skottinu,
búið að laga smá beyglu og það litla rið sem var á honum og setja á hann augabrúnir.

Ég setti Mtech gorma undir bílinn í staðinn fyrir colivers gormanna.
Þegar það átti að fara að setja gormana í að framan þá sáum við pabbi það að það var búið að skera skálina sem gormurinn leggst ofaní úr
struttanum til að setja colivers gormana í, svo það var farið að leita að struttum í 6 cylindra bíl
(sem kostuðu hjá BogL 180.000 kr Stykkið og svo demparinn 60.000 stykkið svo það var ekki keypt þar)
En það var haldið áfram að leita en það gekk ekki neitt þangað til frændi minn benti mér á bíl inní Hafnafirði í eigu Jónka.
Ég hafði samband við hann og hann var tilbúinn að selja mér þá og ekkert mál með það.
Nú svo átti að fara að setja struttana í bílinn en þá sáum við það að struttarnir sem við fengum voru úr 4 cylinder bíl ekki 6 og það var ekkert gat í struttanum
fyrir abs plugg eitthvað en það er abs í bílnum hjá mér.
Svo ég hafði samband við Jónka aftur og hann var tilbúinn að taka bara struttana aftur og ekkert mál með það.
En svo fórum við feðgarnir og frændi minn að spá hvort það væri ekki bara hægt að renna skálina af þessu ströttum sem ég fékk hjá Jónka
því ég var búinn að leita og auglísa í einhveraj 2-3 mánuði án árangurs.
Svo við létum verða af því, skálinn var tekinn af 4 cylindra struttanum og soðinn á mína 6 cylindra strutta.
Nú svo þegar að það var byrjað að rífa undan og laga struttana sáum við það að allri dempararnir undir bílnum voru ónýtir svo það var skipt um það allt í leiðinni.

Svo fyrir stuttu byrjaði miðstöðvar kraninn að leka, mjög skemtilegt teppið bílstjóra megin vel blautt og svona,
en ég hafði enga aðstöðu til að gera við þetta akkurat þá svo ég talaði við frænda minn og hann lokaði bara á renslið tróð bara tvem stórum boltum í rörin sem fara í gegnum hvalbakinn
og lokaði á rennsli inní bíl svo þá ver enginn hiti í þrjá daga.
Svo fékk ég að fara inní skúr hjá frænda mínum og við tókum þetta stykki úr og tókum það í sundur og
reindum eitthvað að þétta þetta en það lak eitthvað pínulítið ennþá en ekkert eins og það var svo við létum þetta bara vera svoleiðis
þangað pabbi gat var laus þá fórum við inná verkstæði og náðum að stoppa lekann.

En það eru svo sem ekki nein svaka plön fyrir þennan bara bera á sætin leður lit og sjæna þaug svoltið ætli ég skipti svo ekki um rúðu næsta sumar
og svo þarf að kíkja eitthvað á topplúguna og setja í hann xenon.
og svo bara að halda honum við vel við laga það sem þarfa að laga og gera við það sem skemmist.

Læt fylgja nokrar myndir

Svona var hann þegar ég fékk hann á colivers.
Image
Svona er hann núna á Mtech (ekki besta mynd til að sýna það).
Image
en þarna er ekki búið að laga beigluna og lipið á skottinu og augabrúnirnar ekki komnar á
En kem svo með fleiri myndir seinna.


Tók nokrar myndir í sumar á Snæfellsnesinu var næstum búinn að rústa bílunum á leiðinni þangað þegar það hljóp hestur í veg fyrir mig ekkert lítið óþægilegt.
Þarna var ég bara búinn að eiga hann í viku svo það var ekki búið að breita neinu.
Image
Image
Image

Author:  SteiniDJ [ Fri 13. Nov 2009 18:24 ]
Post subject:  Re: BMW E30 325i RG-779

Namm, heitur E30!

Author:  Bartek [ Fri 13. Nov 2009 18:32 ]
Post subject:  Re: BMW E30 325i RG-779

mjog smekklegur...toff felgur...

Author:  Erica [ Fri 13. Nov 2009 18:35 ]
Post subject:  Re: BMW E30 325i RG-779

æðislegt að sjá hann í góðum höndum :)

þetta var einmitt mitt aðal áhyggjuefnið þegar ég sá að ég neyddist til selja.. en ég fékk betra í staðin :D og gullið mitt er á góðum stað hjá ykkur feðgum

endilega skella inn fleiri myndum.. er forvitin að sjá hvernig hann kemur út með þessar augnbrýr

Author:  Leví [ Fri 13. Nov 2009 18:40 ]
Post subject:  Re: BMW E30 325i RG-779

já ég kem með fleiri myndir bráðum þegar tími gefst til að taka einhverjar góðar myndir á góðum degi

Author:  Ingsie [ Fri 13. Nov 2009 19:22 ]
Post subject:  Re: BMW E30 325i RG-779

Til hamingju með þennan, greinilega í góðum höndum :)

Author:  Alpina [ Fri 13. Nov 2009 20:55 ]
Post subject:  Re: BMW E30 325i RG-779

Heill og góður bíll :thup:

Author:  tinni77 [ Fri 13. Nov 2009 21:13 ]
Post subject:  Re: BMW E30 325i RG-779

Eftir að þið komuð á Mini-inum til Aron Jarls í sumar sá ég hversu vel þið farið með bíla, greinilega í góðum höndum ;)

Til hamingju aftur með þennan ;)

Author:  Leví [ Fri 13. Nov 2009 21:22 ]
Post subject:  Re: BMW E30 325i RG-779

takk takk.
ja ég er að reina að fá frænda minn í að koma með mér að taka myndir af bílunum saman einhvertíman

Author:  Magnús Þór [ Sat 14. Nov 2009 16:17 ]
Post subject:  Re: BMW E30 325i RG-779

shi hvað ég öfunda þig að hafa fengið þennann,en til hamingju

Author:  Einarsss [ Sat 14. Nov 2009 16:50 ]
Post subject:  Re: BMW E30 325i RG-779

Mega flottur og clean 4 door, þvílíkt fúlt að það sé búið að skemma "alla" 6 cyl strötta á landinu með skera skálarnar af þeim til að fitta coilovers dótinu :(

Author:  Leví [ Sat 14. Nov 2009 17:00 ]
Post subject:  Re: BMW E30 325i RG-779

Þakka ykkur
já þetta er leiðindar vesen með þessa strutta en þetta reddaðist fyrir rest.

Author:  orezzero [ Mon 16. Nov 2009 01:15 ]
Post subject:  Re: E30 325i RG-779

Þessi er svaðalega flottur, til hamingju með hann.

Þessi bill var reindar næstum búinn að valda stór árekstri hjá mér fyrr i summar, ég var að keyra uppí vinnu hjá mér og ég sá hann lagðan uppí Egills þegar á öllum framhvæmdonum stóð sem mest yfir í nyja húsinu, þá kom stór mjólkur trukkur frá MS og fór næstum i hliðina á mér þvi ég var svo mikil fáviti að ég hægði svo sjúklega mikið á mér þegar að ég sá bilinn og varð að skoða hann eins og ég mögulega gat (á ferð) :?

Þetta er sko svosanarlega bill sem maður mundi vilja eiga... :thup:

Author:  Leví [ Mon 16. Nov 2009 11:10 ]
Post subject:  Re: E30 325i RG-779

HAHA já okei ég vinn einmitt hjá ölgerðinni var nú ekki ætluninn að valda árekstri með því að leggja bílunm .
Gott að þetta slappp :D og þakka þér fyrir

Author:  Ampi [ Mon 16. Nov 2009 13:18 ]
Post subject:  Re: E30 325i RG-779

Flottur Leví.. þurfum að fara að hittast eitthvað og taka myndir ;)

Page 1 of 9 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/