Kominn tími á update á þennan !
Já, það er komið nýtt kram í hann, reif gamla M20B25 rokkinn úr og ákvað að uppfæra aðeins, (upphaflega var planið reyndar að fara í Nissan vél, SR20DET, sem mér bauðst á GÓÐA verðinu frá UK, en svo beilaði gæinn úti á síðustu stundu, og urðu engin viðskipti úr því) en í staðinn fór í bílinn:
M50B25
ZF gírkassi úr E34
Non-Vanos
Það sem ég þurfti að gera og kaupa var:
Mótorfestingar (Keypti úr SN111 hjá A Jarli)
Gírkassafesting (Gat notað original G 260 festinguna, þurfti bara að snúa henni við haha)
Breyta drifskafti (Stál & Stansar)
Vatnskassa úr E36 (Rafmagnsvifta með því til bráðabirgða)
Custom fitta forðabúri fyrir stýrismaskínuna
Brake Booster úr Porsche 944 Turbo (úr T-944 hjá Viktori Guðbergs)
Setja kúplingsþræl úr E34 í hann
Skipti um aftari sveifaráspakkdós í leiðinni
Skipti um báðar pakkdósirnar aftan á gírkassanum, sem og fóðringuna fyrir skiptistöngina
Breytti skiptistöngunum
Víra rafkerfi í mælaborð (Master Mechanic A J Hillerz gerði og græjaði, mjög snyrtilegt)
Setti M20 vatnshitaskynjara í hann til að vatnshitamælirinn virki
Keypti fremri E36 pústgrein á þennan E34 mótor til að mótorfestingarnar myndu sleppa
M20 mótorpúðar
Pólý-gírkassapúðar
Custom pústkerfi frá Einari Áttavillta með Y-pípu framarlega í einfalt 2 1/4" alla leið aftur í BRAND NEW 2 1/4 inlet og tvöfalt út endakútinn frá Bílabúð Benna
Og nú er þetta komið í gang og farið að keyra !
Keypti einnig ný miðjustykki í BBS RS að framan (2 STK) frá Þýskalandi og lét glerblása, reif allar felgurnar í sundur, lét króma alla 136 boltana, lét mála allar miðjurnar uppá nýtt, massaði öll lippin og boltaði og kíttaði svo allar saman, og á þær fóru 205/45 R16 að framan og 215/40 R16 Falken BRAND NEW dekk.
Núna er bara smá frágangur eftir, skipta um vatnslás sem er fastur lokaður og fleira smotterí, en hér eru 2 skítamyndir til að sýna brot af afrakstrinum:
M50 að gægjast:
Kem svo með meira þegar ég man það,
takk fyrir mig í bili.