bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
540i(A) - Schaltgetriebe umbau!!! https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=35167 |
Page 1 of 3 |
Author: | Bjarki [ Fri 20. Feb 2009 16:13 ] |
Post subject: | 540i(A) - Schaltgetriebe umbau!!! |
Ég stóðst ekki mátið og keypti 540iA hjá Knúti hérna á spjallinu. Þetta er Ameríku bíll fluttur inn sumarið '06 en hefur lítið sem ekkert verið keyrður á Íslandi. Hér er því um virkilega heilt og með öllu óryðgað body að ræða. Vélin sem var í bílnum eyðilagðist. Nikkasil, þjappaði ekkert á 2 eða 3 cylendrum. Það er því í bílnum núna evrópuvél ekin um 150þkm. Bíllinn sjálfur er ekinn um 195þkm. Það er eitthvað vesen á skiptingunni, föst í limp mode en hann bakkar alveg. Svo logar check engine ljósið. Að öðru leiti held ég að bíllinn sé í nokkuð góðu ástandi fyrir utan einhver nokkur smáatriði. Planið er að breyta bílnum þannig að hann verði alveg eins og evrópu bíll og gera hann beinskiptan með 5g m60 gírkassa. Það verða ekki gefnar neinar dagssetningar en sumarið er tíminn fyrir svona græjur. ![]() Þetta eru leifar af einhverju tape'i sem var þarna á bílnum, þessi amerísku stöðuljós á hliðunum verða að fá að víkja! ![]() Bíllinn var fluttur inn með litlu framtjóni, húdd og stykkið í kringum nýrun, stuðarinn slapp. Það vantar tilfinnanlega V8 framenda. ![]() Undir númeraplötunni eru göt fyrir amerísku númeraplöturnar, þyrfti að hverfa. Svo verða þessar hliðarlínur látnar hverfa líka. ![]() Þetta er náttúrlega hrikalega amerískt litaval á innréttingu, allar líkur á því að þessu verði complete skipt út fyrir eitthvað allt annað. Complete þ.e. teppi, loftklæðning og allt þar á milli! ![]() Bíllinn er mjög vel búinn, rafmagn í stýri, sími, cd magasín, cruise control, hiti, rafmagn og minni í sætum, topplúga o.fl. ![]() Frágangur eftir þarna í húddinu, reikna með því að taka vélina úr þegar ég geri bílinn beinskiptan, það er leki með olíupönnupakkningu sem verður að laga og þá er þægilegt að taka bara allt úr. Þetta verður spennandi verkefni og ég vona að útúr þessu komi skemmtileg græja. Shadowline væðing er spennandi kostur Læst drif úr 750iA hlutfall 3.15 á móti 2.93 sem er í honum núna. Bremsur, fjöðrun og fóðringar virðist allt vera í góðu lagi. Ég á hvít stefnuljós að aftan á móti stefnuljósunum að framan. Annars verða fjárútlát lágmörkuð, ekki mikið sem þarf að versla en talsverð vinna framundan. |
Author: | Mánisnær [ Fri 20. Feb 2009 16:43 ] |
Post subject: | |
Til hamingju með bílinn, trúi ekki öðru en að þessi verði töffaralegur. |
Author: | gunnar [ Fri 20. Feb 2009 16:47 ] |
Post subject: | |
Þessi verður flottur ![]() ![]() |
Author: | aronjarl [ Fri 20. Feb 2009 17:13 ] |
Post subject: | |
djöfull áttu eftir að taka marga í spyrnu á þessu ![]() MEGA drift bíll þegar það er gírkassi og LSD á svona mótor.!! Þetta verður gaman!" |
Author: | bimmer [ Fri 20. Feb 2009 17:22 ] |
Post subject: | |
Herr Umbau klikkar ekki ![]() |
Author: | birkire [ Fri 20. Feb 2009 17:49 ] |
Post subject: | |
Ahhh ég hata græna ameríkubimma.. óspennandi litur á leðrinu líka. En maður hefur fulla trú á þér, verður flottur af-kanaður og beinskiptur ! |
Author: | Danni [ Fri 20. Feb 2009 17:50 ] |
Post subject: | |
Smekklegur bíll! Flott að sjá að þrátt fyrir að þessi bíll er innfluttur frá Ameríku þá eru ekki amerísk númerastærð á honum. Til hamingju með bílinn ![]() |
Author: | . [ Fri 20. Feb 2009 17:52 ] |
Post subject: | |
Mér finnst nú algjör óþarfi að rífa þessa innréttingu úr. ![]() |
Author: | Mánisnær [ Fri 20. Feb 2009 17:54 ] |
Post subject: | |
. wrote: Mér finnst nú algjör óþarfi að rífa þessa innréttingu úr.
![]() Mér fynnst hún hugguleg. |
Author: | JOGA [ Fri 20. Feb 2009 18:15 ] |
Post subject: | |
Mánisnær wrote: . wrote: Mér finnst nú algjör óþarfi að rífa þessa innréttingu úr. ![]() Mér fynnst hún hugguleg. Leðrið sjálft finnst mér fínt (stólar og leðrið í hurðaspjöldunum) en innréttinginn myndi batna rosalega við smá svartan kontrast. T.d. svart mælaborð, teppi og þess háttar eins og Bjarki minntist á. Hlakka verulega til í að sjá útkomuna á þessu. V8 BMW, 4dyra, BSK, LSD = eitthvað sem ég gæti alveg hugsað mér ![]() |
Author: | JOGA [ Fri 20. Feb 2009 18:21 ] |
Post subject: | |
Eitthvað svona (samsetningin þ.e.) ![]() Strax skárra svona: ![]() |
Author: | Viggóhelgi [ Fri 20. Feb 2009 18:56 ] |
Post subject: | |
Já, ég hef fulla trúa á að þessi bíll verði klikkaður um sumarið. eins og var bent á hérna, þá væri mjög flott að fá smá svart í innréttinguna, gólfteppi og toppinn á innréttingunni... Good luck vinur! ![]() |
Author: | ingo_GT [ Fri 20. Feb 2009 19:09 ] |
Post subject: | |
Flottur á öruglega eftir að verða skemtilegt tæki þegar þú ert búinn að breyta honum ![]() |
Author: | GunniClaessen [ Fri 20. Feb 2009 20:34 ] |
Post subject: | ... |
ég var með augastað á þessum og var að pæla í að skella mér á hann en heyrði að það væri mikið vesen að gera við skiptinguna en fyrst þú ætlar að gera hann beinskiptan þá skiptir það engu ![]() Gott að sjá að hann komst í hendur umhyggjusams eiganda. -gunni |
Author: | Axel Jóhann [ Fri 20. Feb 2009 21:12 ] |
Post subject: | |
Flottur, hef fulla trú á því að þessi verði geðveikur. ![]() ![]() ![]() |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |