Lét loksins gamlan draum rætast og skellti mér á ///M bíl.
Bíllinn er M5, árgerð 11/99, fluttur inn árið 2004. Ekinn 118þ. Þetta er minn fyrsti BMW en hingað til hef ég verið svona laumu BMW perri og er búinn að vera passivur user hér á spjallinu síðan snemma árs 2003.
Þetta er bíllinn sem Fart hér á spjallinu flutti inn. Ég var heitur að kaupa bílinn þegar hann seldi en það gekk ekki eftir. Svo þegar ég sá hann auglýstan núna aftur stökk ég á hann.
Þvílik unun að keyra þetta tæki. Aflið, hljóðið, þægindin, og bara ....allt.
Það er orðið langt síðan ég hef farið út að keyra bara til þessa að keyra.
Nokkrar myndir teknar í kvöldsólinni í gær.
Ágætt í bili. Betri myndir og fleira seinna. Er að fara út að keyra
Einzi





